Meðal verkefna dagsins hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var einstaklingur sem var með hníf og sýndi af sér ógnandi hegðun á ölhúsi og annar aðili sem var með hníf í matvöruverslun og ógnaði starfsfólki.Fyrrnefnda verkefnið kom til kasta lögreglustöðvar 1 sem sér um löggæslu í miðborg, vesturbæ og austurbæ Reykjavíkur auk Seltjarnarness.Í dagbók lögreglu segir að umræddur einstaklingur hafi verið í annarlegu ástandi. Hann hafi verið handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hann verður viðræðuhæfur.
Ógnaði starfsfólki matvöruverslunar með hníf