Heimsmeistarakeppni smalahunda í Skotlandi hefst í dag og stendur fram á sunnudag.
Keppendurnir frá Íslandi eru Maríus Snær Halldórsson, bóndi á Presthólum í Núpasveit í Öxarfirði, með hundinn Rosa og Elísabet Gunnarsdóttir, bóndi á Ketilsstöðum á Tjörnesi, með tíkina Ásu.
Maríus segir að það kosti mikið að taka þátt í heimsmeistaramótinu en að þau Elísabet hafi fengið góða styrki víða að, sem þau eru mjög þakklát fyrir.
Áttu von á að þið náið góðum árangri?
„Já, já, það held ég. Ég trúi ekki öðru,“ segir Maríus.
En geta áhugasamir fylgst einhvers staðar með keppninni?
„Já, það er hægt að fara inn á síðu Smalahundafélags Íslands og finna þar út til að geta horft á streymi,“ segir hann.