Það er mat Fjölmiðlanefndar að hlaðvarpið Komið gott teljist fjölmiðill samkvæmt lögum. Nefndin hefur vakið athygli á skráningarskyldu hlaðvarpsins sem slíks. Í erindi til stjórnenda er þeim veitt lokafæri á að skrá hlaðvarpið hjá Fjölmiðlanefnd eða koma frekari skýringum á framfæri.
Það telst sem brot á lögum um fjölmiðla að skrásetja ekki fjölmiðil sem slíkan. Ólöf Skaftadóttir, annar stjórnenda Komið gott, segir af og frá að hlaðvarpið sé fjölmiðill.
Slæmt að líkja hlaðvarpi við raunverulega fjölmiðla
„Við erum bara ósammála því mati heilt yfir. Nú starfaði ég sem fjölmiðlamaður um árabil og það sem við Kristín gerum í hlaðvarpinu okkar á ekkert skylt við fjölmiðlun, þar sem fólk leitast við að segja satt og rétt frá og að tala um hluti sem eru á málefnalegum nótum.“
Ólöf segir slæmt að þáttum sem séu að uppistöðu grín sé líkt við störf raunverulegra fjölmiðla. Hún spyr þá einnig hvar takmörk eftirlitsskyldu nefndarinnar liggi.
Mat fjölmiðlanefndar á því hvort Komið gott teldist fjölmiðill í skilningi laga byggist einkum á því að hlaðvarpið miðli ritstýrðu efni með reglubundnum hætti til almennings og virðist hafa fjárhagslegan ávinning af því.
Fjölmiðlar, fjölmiðlaveitur og fjölmiðlaþjónustur eru skráningarskyld hjá nefndinni. Ekki öll hlaðvörp falla undir lög um fjölmiðla, þó að það sé mat nefndarinnar í þessu tilfelli. Fjölmiðlanefnd metur hvert tilfelli fyrir sig.
Spyr hvort eftirlitið nái til skinka á Onlyfans og matarbloggara
Ólöf segir að stór hluti tekna Komið gott sé vegna skemmtanahalds þó að einhverjar tekjur séu frá styrktaraðilum þáttarins. Hún spyr því hvort Fjölmiðlanefnd haldi einnig úti eftirliti með uppistandi á þorrablótum og í sextugsafmælum.
„Ég get ekki undirgengist það að ég þurfi að skrá mig í eitthvað opinbert batterí og fara að lúta sömu reglum og Ríkisútvarpið út af því að ég held úti þvaðurrás með vinkonu minni,“ segir Ólöf.
„Ég hef sagt við fjölmiðlanefnd: Myndi þetta breytast eitthvað ef við myndum bara halda þessu úti á Onlyfans í staðinn fyrir að gefa þetta út á Spotify og Apple? Þeim fannst það ekkert skipta máli. Þannig að það hlýtur að vera að hver einasta skinka á Onlyfans eða matarbloggari á Instagram, þetta hlýtur allt að vera undir.“
Heilbrigð andspyrna við „stjórnlyndisrugli“
Hún segir Komið gott andmæla mati nefndarinnar. Þær taki þessu almennt af léttúð en það dragi vissulega úr sköpunargleðinni að standa í bréfaskrifum við nefndina vegna málsins.
„En ef það eru ekki við sem eigum að veita heilbrigða andspyrnu við svona stjórnlyndisrugli þá veit ég ekki hver það ætti að vera.“
Stjórnvaldssektir geta numið allt að 10 milljónum króna vegna brota gegn lögum um skráningarskyldu.
„Þegar afleiðingarnar eru orðnar einhver 10 milljóna króna út af því að ég og besta vinkona mín erum að rugla í míkrófón sem við keyptum sjálfar þá finnst mér bara komið gott.“