Fyrirtækið Grænafl hefur unnið að lausnum til að rafvæða lítil fiskiskip frá 2024. Orkuskipti strandveiðiflotans hér á landi gætu sparað losun á tugum þúsunda tonna af koltvísýringi.
„Verkefnið er á tímamótum. Síðar í dag munum við undirrita samstarfssamning við okkar kóresku samstarfsaðila. Sem þýðir það að við erum komin af þessu undir´buningsstigi á framleiðslustig. Það má segja að rafvæðing íslenska strandveiðiflotans mun hefjast,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls.
Fjármagn tryggt frá Suður-Kóreu
Verkefnið sé komið á það stig að hönnun og framleiðsla, sérstaklega teiknuð inn í fyrir íslenska fiskibáta, sé að hefjast. Kolbeinn býst við því að fyrsti rafbáturinn verði kominn í notkun næsta sumar. Fjármagn hefur verið tryggt til þess að hefja framleiðslu frá bæði Íslandi og Suður-Kóreu.
„Auk þess fengum við fjármagn inn í verkefnið frá Suður-Kóreu sem gerði okkur kleift að fara af stað. Það er í raun og veru dálítið merkilegt að Suður - Kórea er að fara að greiða að hluta til fyrir rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta,“
Vantar aðeins upp á hleðsluinnviði
Á næstu mánuðum hefst vinna við að taka allt olíuverk úr bátnum Oddverja SI og prufa nýju vélarnar, það verður gert á Akureyri. Kolbeinn segir að aðeins vanti upp á hleðsluinnviði við hafnir landsins en nægt rafmagn sé til þess að anna orkuskiptum flotans. Verkefnið er viðamikið og telur Kolbeinn líklegt að það muni teygja anga sína til Suður-Kóreu þegar að fram líða stundir.
„Síðan er hugsunin að þetta verkefni fari líka út til Suður-Kóreu og við verðum líka með í því. Það eru býsna margir bátar undir, bæði hér og þar.“