Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hefur misst um 200 þúsund fylgjendur á Instagram á einum sólarhring eftir að harðar deilur blossuðu upp í kringum tónleikaferð hans um Bandaríkin. Öll upphitunaratriðin sem eftir voru á ferðinni hafa nú hætt við þátttöku sína.Deilan hófst eftir að rapparinn Macklemore var tekinn af dagskrá tónleikaferðarinnar í kjölfar ræðu sem hann flutti til stuðnings Palestínumönnum á tónleikum Sheerans á MetLife Stadium í New Jersey. Macklemore átti að hita upp fyrir Sheeran á átta af næstu tíu tónleikum hans í Bandaríkjunum.
Vandræðin hrannast upp hjá Ed Sheeran – 200 þúsund fylgjendur horfnir