Ríkisstjórnin hefur átt uppbyggileg samtöl við aðila vinnumarkaðarins um stöðuna í kjarasamningamálum og hefur opnað á aðkomu ríkisins til að ekki komi til uppsagnar þeirra. Sú innkoma verður hins vegar ekki á kostnað hallalausra fjárlaga þannig að ef um veruleg útgjöld er að ræða þarf að fjármagna þau með tekjuöflun sem aðilar verða að vera sammála um. Það var gagnrýnisvert að stjórnvöld skyldu samþykkja ófjármögnuð loforð í tengslum við kjarasamninga. Það er ekki í boði. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Daði Már Kristófersson: Ríkisstjórnin er til í aðgerðir til að kjarasamningar haldi – verður samt ekki á kostnað hallalausra fjárlaga