Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins
Fyrirhuguð hækkun kílómetragjalds gæti gert það að verkum að kostnaður við akstur sparneytinna bíla jafngildi allt að 452 króna bensínlítra og 486 króna dísellítra, samkvæmt útreikningum Visku.
Fyrirhuguð hækkun kílómetragjalds á næsta ári mun gera það að verkum að eldsneytiskostnaður og kílómetragjald sparneytins bensínbíls jafngildi 452 króna verði á hvern lítra. Hjá dísilbíl með sömu eyðslu er samsvarandi tala 486 krónur.
Þetta kemur fram í greiningu Visku á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár, sem Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur félagsins, skrifar. Hann umreiknaði kílómetragjaldið yfir í jafngildi skatts á hvern lítra eldsneytis til að bera nýja gjaldtökukerfið saman við eldra kerfi eldsneytisskatta.
„Ríkið getur ekki ætlast til verðstöðugleika af atvinnulífinu á sama tíma og það verðtryggir eigin gjaldskrár.“
Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að krónutölugjöld hækki almennt um 5,2 prósent í takt við verðbólguforsendur. Þar að auki er gert ráð fyrir að kílómetragjaldið skili ríkissjóði fjórum milljörðum króna til viðbótar umfram verðlagsuppfærsluna. Viska segir breytingarnar samanlagt jafngilda 15,9 prósenta hækkun kílómetragjaldsins.
Tekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti eru áætlaðar um 89 milljarðar króna á næsta ári, eða 1,6 …