Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga og hefjast samningaviðræður við eiganda húsnæðisins á morgun.
Frumvarp dómsmálaráðherra um stöðina var samþykkt í júní. Frumvarpið var umdeilt utan þings og á lokametrunum voru gerðar umtalsverðar breytingar á því. Til að mynda að barnafjölskyldur skyldu vistaðar í sér úrræði fjarri einstaklingum. Samkvæmt frumvarpinu á brottvísunarstöðin að taka til starfa 1. desember.
Framkvæmdasýsla ríkiseigna óskaði eftir húsnæði á Suðurnejsum og bárust fjórtán tilboð frá þrettán aðilum. Þrír kostir komu til greina og var ákveðið að ganga til viðræðna við Fjöl ehf. um húsnæði við Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjenesbæ. Fyrsti samningafundur verður á morgun.
Í svörum frá dómsmálaráðuneytinu segir að leit standi enn yfir að húsnæði undir barna- og fjölskylduúrræði.