Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tvenna tónleika á Akranesi í gær. Hátt í 190 söngvarar tóku þátt í tónleikum hljómsveitarinnar í kvöld sem er einhver mesti fjöldi söngvara sem sungið hefur með Sinfó. Það var til viðbótar við um þrjátíu börn sem sungu með hljómsveitinni á skólatónleikunum fyrr um daginn.
„Þetta hefur svo mikið gildi fyrir krakka. Þau gleyma þessu náttúrulega aldrei meðan þau lifa – að hafa fengið að syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir Hilmar Örn Agnarsson, organisti við Akraneskirkju. Hilmar Örn og Vera Líndal, verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akranesi, áttu frumkvæði að tónleikunum sem voru tvö ár í undirbúningi.
„Þetta lyftir öllu upp. Við verðum öll betri söngvarar og betri manneskjur við svona stórviðburð.“