Á vef Reykjavíkur segir að viðhaldslokanir fari fram á sumrin þar sem ekki er hægt að sinna viðhaldi utanhúss á veturna.
Í viðhaldslokunum er farið í viðgerðir á mannvirkjum, málun, múrvinnu og almennt viðhald sem ekki er hægt að framkvæma á opnunartíma.
Sundhöllinni verði lokað frá 26. maí til 21. júní. Öðrum sundlaugum verður lokað í viku.
- Dalslaug: 1. til 7. júní.
- Árbæjarlaug: 8. – 15. júní
- Grafarvogslaug: 15. – 23. júní
- Vesturbæjarlaug: 23. júní – 30. júní
- Klébergslaug: 24. – 30. ágúst
- Laugardalslaug: 24. – 30. ágúst