Mál Skagstrendingsins sem náði ekki í Neyðarlínuna á föstudaginn er enn til skoðunar, bæði hjá Neyðarlínu og Fjarskiptastofu. Málið er litið alvarlegum augum og ekki útilokað að það tengist útfösun á 2G og 3G sendum á landinu.
Eldri símar eru þannig gerðir að þegar hringt er í neyðarnúmer reynir síminn sjálfkrafa að gera það í gegnum gömlu 2G eða 3G kerfin, sem eru ekki lengur virk á Íslandi. Þetta þótti besta og öruggasta leiðin hjá símaframleiðendum fyrir nokkrum árum - áður en slökkt var á sendunum.
„Ef að þau eru ekki til staðar, þá kemst símtalið ekki í gegn. Símtækið virkar að öðru leyti, til að afgreiða símtöl - hvort sem það er í Dominos eða önnur innlend eða erlend símanúmer,“ segir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu og segir mikilvægt að átta sig á að símtæki geti virkað fullkomlega fyrir utan neyðarsímtölin.
Fjarskiptafélög beri ábyrgð
Fjarskiptafélögin, sem eiga og reka sendana og kerfin, beri ábyrgð á að slökkva á þessum gömlu kerfum.
„Það að slökkva á fjarskiptakerfunum var ákvörðun fjarskiptafélagana. Þau mátu stöðuna þannig að það var óhætt að fara út í þessa útfösun á þessum tímapunkti. Ég og Jón Svanberg [framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar] erum sammála um það að það þarf að útrýma þessum tækjum sem geta ekki hringt í 112 og það fyrr en síðar,“ segir Hrafnkell sem telur að um 6000 notendur gætu mögulega lent í sömu vandræðum og maðurinn á Skagaströnd. Fjarskiptastofa og Neyðarlínan ítreka að fólk hringi í númerið 1280 til þess að athuga hvort náist samband við Neyðarlínuna - ekki í 112. Hrafnkell segir þetta mjög mikilvægt:
Símtöl í Neyðarlínuna eru gríðarlegt öryggismál