Þrátt fyrir að sumarið sé löngu komið á dagatalinu hefur sumarveðrið látið bíða eftir sér. Nú er útlit fyrir að veðrið sé að batna og spáð er blíðviðri um allt land í vikunni. Hitinn gæti mest farið í 16 stig á suðvesturhorninu og 18 stig á norðanverðu landinu.
„Já það virðist vera að víða um land verði léttskýjað eða skýjað með köflum og fremur hlýtt að mestu leyti. Næstu daga er von á fremur hægum vindum og blíðviðri í flestum landshlutum,“ segir Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur.
Sundlaugin á Akureyri er ávallt vinæll áfangastaður þegar vel viðrar en nú stendur hún tóm, í orðsins fyllstu merkingu. Ekkert vatn er í lauginni því viðhald stendur yfir fram á föstudag. Það er verið að skipta um línur í botnum lauganna og sinna viðhaldi á fúgum og flísum. Þetta er annað árið í röð sem viðhaldi er sinnt ofan í fyrstu sumarveðursdagana:
„Við þurfum gott veður til þess að geta klárað viðhaldið annars gerum við ekki neitt. Hvimleitt fyrir gestina en fínt fyrir okkur,“ segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður Sundlaugarinnar á Akureyri. Viðhaldið er tímafrekt, sérstaklega í ljósi þess að tæma þurfti laugina af um milljón lítrum af vatni áður en viðhaldið gat hafist. Þegar því er lokið þarf að fylla laugina aftur og hita vatnið.
Það gengur vel og allt fór vel af stað. Við reiknum með að vera búin að opna á laugardaginn þegar helgartraffíkin fer af stað.