Súld eða rigning og milt veður - Vísir
28.04.2026 07:23:45
👁️ 0 lesið
Hiti verður á bilinu sjö til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Skúrir á vestanverðu landinu síðdegis og kólnar heldur.Suðvestan 10-18 á morgun, en hægari syðra. Bjart veður um landið norðaustanvert, annars skúrir eða slydduél. Hiti 3 til 12 stig, mildast á Austurlandi. Á fimmtudag er samkvæmt spá útlit fyrir svipað veður áfram, en hægari vind og hiti á þá smám saman að fara lækkandi.Nánar um veður á
vef Veðurstofunnar og um færð á
vef Vegagerðar. Þar kemur fram að færð sé nokkuð góð en þó víða holur á vegi og víða vinna og þess vegna tafir.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Suðvestan 8-18 m/s, hvassast norðantil. Skúrir eða slydduél, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 3 til 12 stig, mildast austanlands.
Á fimmtudag: Suðvestan 5-13 og skúrir eða slydduél, en bjart með köflum norðaustan- og austanlands. Hiti 2 til 9 stig yfir daginn.
Á föstudag: Norðlæg átt og kólnar norðanlands með éljum. Þurrt að mestu sunnan heiða með hita 2 til 7 stig að deginum.
Á laugardag: Suðvestanátt og sums staðar skúrir eða él sunnan- og vestantil. Svalt í veðri.
Á sunnudag og mánudag: Breytileg átt og víða líkur á éljum eða slydduéljum.
#rigning
#veður
#vísir
#súld
#milt