Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans sem verður 12. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.
Á þeim svæðum þar sem almyrkvi á sólu verður mestur, á Reykjanesi, Vesturlandi og Vestfjörðum, er búist við miklum fjölda fólks sem geti skapað álag á farnetskerfi á þessum svæðum.
Staðan við Látrabjarg viðkvæmari
Farnetsfyrirtækin séu að undirbúa ýmsar ráðstafanir á Snæfellsnesi og Reykjanesi til að mæta auknu álagi vegna sólmyrkvans. Staðan við Látrabjarg, sem er vestasti punktur Íslands, sé þó viðkvæmari þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu hafi tafist. Því sé þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum til að auka afköst og útbreiðslu farnets í tæka tíð.
„Nauðsynlegt er að ráðast í uppfærslu á fyrirliggjandi fjarskiptainnviðum þar sem ekki næst að ljúka lagningu rafstrengja og ljósleiðara á svæðinu við Látrabjarg þar sem álagið verður sem mest styrkt með aðkomu farnetsfyrirtækja og stuðningi ráðuneytisins,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra í tilkynningunni.
Erfitt að komast út á Látrabjarg
Bæjarráð Vesturbyggðar bókaði nýlega um áhyggjur sínar af undirbúningnum og vilja að ríkið tryggi Vegagerðinni fjármagn í viðhald malarvega í sveitarfélaginu.
Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar hefur bent á að erfitt verði að komast út á Látrabjarg vegna fárra bílastæða og að fólk þurfi að ganga langar leiðir. Þar að auki verði engin þjónusta þar og ekkert vatn í boði og fólki bent á að búa sig þannig að það geti verið úti í sólarhring.
Aðrir vegir í Vesturbyggð þoli einnig illa rútur og að eina viðhaldið sem Vegagerðin geri ráð fyrir sé að hefla þá einu sinni á ári.
Aðgerðirnar miði að því að bæta útbreiðslu og afköst fyrirliggjandi farnetssenda, styðja við viðbúnað viðbragðsaðila og draga úr líkum á alvarlegum truflunum í farnetsþjónustu á svæðinu.