Stúlka undir lögaldri, vistmaður á barnaverndarstofnun í grennd við sveitarfélagið Moss í Østfold-fylki í Noregi, var handtekin í nótt, aðfaranótt miðvikudags, í kjölfar þess er lögreglu barst tilkynning klukkan 01.50 að norskum tíma um að starfsmaður á stofnuninni hefði verið lagður eggvopni í brjóstkassa.
Hélt vopnuð lögregla þegar á vettvang ásamt sjúkraflutningafólki og reyndist starfsmaðurinn ekki hafa hlotið alvarlegt líkamstjón við árásina svo gert var að sárum hans á vettvangi.
Að sögn Melissu Krag Mørch lögregluvarðstjóra hafði komið til deilna milli stúlkunnar og starfsfólks stofnunarinnar áður en starfsmaðurinn varð fyrir hnífslaginu og hafði stúlkan yfirgefið stofnunina þegar lögregla kom á vettvang. Var leit að henni þegar hafin sem bar árangur nokkrum tímum síðar og var hún þá handtekin.
Yfirheyrð í barnahúsi
Liggur hún nú undir grun um líkamsárás og mun sæta yfirheyrslu sem fer fram eins og regluverkið gerir ráð fyrir þegar yfirheyra þarf börn. Fer yfirheyrslan fram í barnahúsi í tryggu umhverfi að viðstöddum ráðgjöfum, sálfræðingum og fleira starfsfólki sem leiðir grunuðu gegnum allt ferlið og er til staðar á meðan hljóðupptaka er gerð af framburði stúlkunnar ef svo færi að réttað yrði í málinu á síðari stigum.
Norska ríkisútvarpið NRK hefur verið í sambandi við Gro Fremstad verjanda stúlkunnar en hún reyndist þá enn ekki hafa haft færi á að ræða við skjólstæðing sinn.