Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir sögulegan viðburð hafa orðið í sögu landsins í kvöld þegar Spectrum 2 geimflauginni var skotið upp frá geimferðamiðstöðinni á Andøya klukkan tólf mínútur yfir tíu að staðartíma.
Spectrum er lítil tveggja þrepa flaug framleidd af þýska sprotafyrirtækinu Isar Aerospace, sem ætlað er að koma litlum og meðalstórum gervihnöttum á sporbaug um jörðu. „Árangursríkt geimskot frá Andøya markar tímamót fyrir Noreg sem geimferðaríki,“ skrifaði Støre á Facebook í kvöld og mærði samvinnuna við Þjóðverja.
Fyrsta þrep flaugarinnar féll í hafið sunnan við Grænland og annað nærri Norðurskautinu. Verkefnið nýtur stuðnings frá Geimferðastofnun Evrópu. Í frétt NRK segir að þetta sé fyrsta geimskotið frá Vestur-Evrópu enda þróun flaugarinnar liður í því að auka sjálfstæði álfunnar þegar kemur að geimskotum.
Fyrsta tilraunaflugið í mars á síðasta ári gekk ekki sem skildi því flaugin hrapaði og sprakk hálfri mínútu eftir flugtak. Fjórum sinnum síðan þurfti að fresta tilraunaskoti þar til nú.
Ketil Olsen framkvæmdastjóri Andøya Space er sammála Støre um að stundin sé söguleg og segir þróun fyrirtækisins það hraða að innan fárra ára verði þrjátíu gervihnöttum skotið á loft frá Noregi árlega.
Daniel Metzler, framkvæmdastjóri Isar, hét árið 2023 þá krónprinsinum Hákoni að koma Noregi á geimferðakortið. Hann fagnaði því að geimskotið tókst fyrir útför Haraldar konungs næsta miðvikudag.