Strangari öryggiskröfur til marks um breytta heimsmynd

Strangari öryggiskröfur til marks um breytta heimsmynd

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Kara Connect hefur gert samning við Evrópusambandið um að veita þrjátíu stofnunum þess aðgang að stafrænu velferðartorgi næstu fjögur árin.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Köru Connect, telur það merki um breytta heimsmynd að ein krafan hafi verið að ekki mætti nota bandarískan hugbúnað.

Velferðartorg fyrir 12 þúsund manns

Evrópusambandið bauð út velferðarþjónustu fyrir starfsmenn, svo sem sálfræðinga og næringarfræðinga, og Kara Connect varð hlutskarpast.

Torg er útbúið fyrir hverja og eina stofnun. „Hver og ein fær sem sagt aðgang að sínu eigin velferðartorgi þar sem verða sérfræðingar á mismunandi tungumálum og sérfræðiþjónusta og starfsmenn geta í trúnaði tengt sig við einhverja sem geta hjálpað þeim,“ segir Þorbjörg.

Stofnanirnar eru misstórar, staðsettar í 14 löndum og hafa um 12 þúsund starfsmenn.

Máttu ekki nýta bandaríska þjónustu

Í samningnum voru gerðar strangar kröfur um öryggismál og gæði. Þekkt er að varað sé við að nota kínverskan eða rússneskan hugbúnað, en í þessu tilviki bættust til að mynda Bandaríkin við.

Þorbjörg hefur ekki tekið eftir jafn skýrri kröfu áður um að þjónusta sé veitt og tækni staðsett innan Evrópusambandsins eða Evrópska efnahagssvæðisins.

„Þau eru algjörlega að taka fyrir að við séum að nýta þjónustur í Bandaríkjunum. Jafnvel bara utan Evrópusambandsins. Þannig að við þurftum að skipta út fjórum þjónustuaðilum sem voru að gera litla hluti fyrir hugbúnaðinn til að tryggja að uppfylla gæðakröfur og öryggiskröfur ESB.“

Þorbjörgu þykir þetta til marks um breytta heimsmynd. „Þetta gengur það langt að þjónustuaðilinn sem er að tala við einhvern hjá okkur má ekki vera staðsettur í Bretlandi, svo þetta er mjög áhugaverð þróun.“

#breytta #marks #strangari #til #öryggiskröfur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-02-strangari-oryggiskrofur-til-marks-um-breytta-heimsmynd-474132

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260