Landsbankinn hefur enn aðsetur í gamla bankahúsinu á Raufarhöfn sem nú er kallað Ráðhúsið. Þar er einnig pósthús bæjarins og skrifstofa starfsmanna samtakanna og Norðurþings.
„Við höfum verið hér starfandi í þessu húsi í þó nokkur ár. Hér er samsuða af alls konar stofnunum og það var bara kominn tími á ýmislegt,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, starfsmaður SSNE á Raufarhöfn. Miklar endurbætur hafa staðið yfir og búið er að tryggja fjármagn til að ljúka framkvæmdum með styrk frá Stefnumótandi byggðaáætlunum.
„Það er, svo lengi sem við förum ekki fram úr áætlunum, já. Sveitarfélagið leggur til mótframlag og er að vinna í endurbótum á húsinu sjálfu líka,“ segir Nanna.
Frábært fyrir störf án staðsetninga
Markmiðið er að útbúa aðstöðu fyrir störf án staðsetningar til að laða fólk til Raufarhafnar. Einnig er hægt að leigja skrifstofurými í skemmri tíma til dæmis til að hafa vinnuaðstöðu yfir sumartímann eða í kringum jól og páska. Nanna er ánægð með útkomuna:
„Og svo bara alls konar rúllerí af fólki sem kemur í lengri og skemmri tíma. Við erum á samfélagsmiðlum að reyna að benda á okkur og halda því á lofti að það sé möguleiki fyrir fólk að koma hérna og starfa. Við erum með allt til alls. Það er góð starfsmannaaðstaða hérna og við eigum einstaklega gott kaffi og góð internettenging og bara já, allt til alls.“