ES-30 er stærsta rafmagnsflugvélin sem komin er þetta langt í þróun, með sæti fyrir 30 farþega. Hún þykir líkleg til að verða brautryðjandi í innleiðingu arðbærs rafknúins farþegaflugs í heiminum, einnig á Íslandi, en Icelandair hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum.
Eftir að Heart Aerospace tilkynnti fyrir ári að það hefði ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa þar til núna afar takmarkaðar fréttir borist af smíði flugvélarinnar en hún er talin helsta vonarstjarna fluggeirans til að leiða þróun að sjálfbæru og mengunarfríu atvinnuflugi.
Tilraunin sem núna var greint frá var þó aðeins í hægum akstri eftir flugbrautum. Engu að síður segir Heart Aerospace þetta marka mikilvægan áfanga í prófunaráætlun flugvélarinnar á jörðu niðri fyrir fyrsta flugið og vottun bandarísku flugmálastjórnarinnar FAA. Engin tímasetning er þó gefin upp um hvenær flugið gæti orðið en stefnt er að tegundarvottun árið 2029.
Hér má sjá reynsluaksturinn:
Um líkt leyti birtist skýrsla frá rannsóknar- og eftirlitsstofnun fulltrúadeildar bandaríska þingsins, þeirra ríkisendurskoðun, þar sem varað er við því að skortur á nauðsynlegum innviðum gæti tafið innleiðingu rafknúinna flugvéla. Vitnað er í gögn frá FAA sem sýndu að í desember 2025 höfðu aðeins 47 flugvellir í Bandaríkjunum skilgreint hleðslustöðvar fyrir rafknúnar flugvélar í áætlunum sínum. Þjálfun starfsfólks flugvalla væri á frumstigi, þar á meðal slökkviliða í að fást við bruna í rafhlöðum.
Ennfremur er bent á að flugmálastjórnin sjálf hafi ekki komið sér upp samræmdu regluverki til að votta rafknúnar flugvélar. Á sama tíma sé tilskipun þingsins um að uppfæra lofthæfistaðla fyrir rafhreyfla, sem átti að ljúka fyrir maí 2027, þegar farin í vaskinn vegna þess að ráðgjafarnefnd, sem sett var í verkefnið, var í raun lögð niður af stjórn Trumps í ágúst 2025.
Frumgerðin var fyrst sýnd í Gautaborg haustið 2024: