Flugi Icelandair frá Gautaborg í gær var aflýst með þeim afleiðingum að stór hópur íslenskra barna sem tóku þátt í knattspyrnumótinu Gothia Cup voru í reiðileysi í flugvellinum í Gautaborg ásamt liðsstjórum sínum. Var hópurinn í verulegum vandræðum þar sem útvega þurfti gistingu með skömmum fyrirvara.Fluginu var seinkað þráfaldlega uns því var aflýst undir kvöld en þá höfðu börnin beðið á flugvellinum í yfir fjórar klukkustundir.
Stór hópur íslenskra barna strandaglópar í Gautaborg eftir að Icelandair felldi niður flug