Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson, sem ætluðu að synda frá Vestmannaeyjum að Landeyjahöfn í dag, voru staddir um 1.500 metra frá landi þegar ákveðið var að hætta skyldi sundinu vegna veðurskilyrða.
„Þetta gekk rosalega vel fyrstu kílómetrana. Við fengum mjög góðar aðstæður og vorum á þrusugóðu róli og það stefndi allt í að við myndum klára þetta á um fimm klukkutímum,“ segir Jóhann í samtali við mbl.is.
Skipað að stöðva sundið
Íslenska veðrið á það oft til að vera ansi ófyrirsjáanlegt eins og landsmenn þekkja mætavel. Á sundi félaganna sannaðist hið fornkveðna að skjótt skipast veður í lofti.
„Svo bara á tveimur mínútum lagðist yfir svaka mikill öldugangur og vindur og við fórum frá því að vera á spegilsléttu og þægilegu færi í að vera í einhverjum öldugraut,“ segir hann.
„En við héldum áfram að synda og neituðum að gefast upp. Svo tók skipstjórinn ákvörðun um að þetta væri orðið of hættulegt og sundið var stöðvað,“ bætir hann við en þá voru þeir félagar staddir um 1.500 metrum frá Landeyjahöfn.
Þess ber að geta að félagarnir áætluðu að sundið milli lands og Eyja yrði tólf til þrettán kílómetrar.
Hafa safnað nærri milljón
Jóhann segist þó afar stoltur af frammistöðu þeirra í krefjandi aðstæðum. Íslenska veðrið megi ekki vanmeta og ber Jóhann mikla virðingu fyrir því.
Sundið var synt til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk.
Þegar þessi frétt er skrifuð er búið að safna 987.000 krónum. Hægt er að heita á sundkappana hér.
„Við erum svo þakklátir fyrir allan stuðninginn sem við höfum fengið og maður á ekki til orð yfir samstöðuna sem maður er búinn að sjá og það er náttúrlega það sem skiptir mestu máli. Tilgangurinn er fyrst og fremst að láta gott af okkur leiða,“ segir hann.
Spara sér miðann í Herjólf
Jóhann segir miklar líkur á því að þeir félagarnir reyni aftur við sundið í ljósi þess hve nálægt endamarkinu þeir komust í dag.
Væri ekki tilvalið að synda bara á Þjóðhátíð?
„Já, hvernig væri það? Synda á Þjóðhátíð og spara sér miðann í Herjólf,“ segir Jóhann og hlær.
„Við vorum svo pínlega stutt frá landi að ég held að það verði erfitt að sleppa því að koma aftur og klára þetta,“ bætir hann við að lokum.