Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að fallið verði frá frekari vinnu við fyrirhugaða íbúðarbyggð á túni við Sóleyjarima í Grafarvogi, svokölluðu Sóleyjatúni.
Á fundi ráðsins í september 2024 voru lagðar fram tillögur að nýrri íbúðabyggð á túninu og samþykkt að vinna áfram með tillögur arkitektastofunnar Esju. Ráðið hefur nú falið umhverfis- og skipulagssviði að loka málinu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í ráðinu segja ákvörðunina tekna í samræmi við stefnu meirihlutans og vísa í verkefnalista hans þar sem segir: „Við ætlum að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa.“
Í bókun meirihlutans segir: „Meirihlutinn leggur áherslu á að næstu skref í húsnæðisuppbyggingu í Grafarvogi verði mótuð í raunverulegu samráði við íbúa og að leitað verði nýrra og hentugri uppbyggingartækifæra þar sem tekið er tillit til grænna svæða, skólastarfs, innviða og gæða nærumhverfis.“
Minnihlutinn segir vanta íbúðir fyrir fólk sem vill minnka við sig
Fulltrúar Samfylkingarinnar í ráðinu harma það að meirihlutinn leggist gegn frekari uppbyggingu í Grafarvogi og lýsa yfir þungum áhyggjum af frestun uppbyggingaráforma á höfuðborgarsvæðinu.
„Börnum í Grafarvogi hefur fækkað um 2000 frá aldamótum og gríðarlega mikilvægt er fá fram lýðfræðilegar breytingar í hverfinu svo nýta megi innviði hverfisins á skilvirkari vegu,“ segir í bókun þeirra.
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins tekur í sama streng og segir íbúðir vanta fyrir fólk sem vill minnka við sig.
Ráðið samþykkti einnig í gær að fela umhverfis- og skipulagssviði að yfirfara fyrirhugaða uppbyggingu og þéttingu byggðar við Starengi og Hverafold í Grafarvogi. Sviðinu var falið að leggja fram tillögur um breytingar á skipulagi sem „taka mið af sjónarmiðum íbúa, áhrifum á nærumhverfi og þjónustugetu hverfisins“.