„Okkur varð það algjörlega skýrar að ríkið stendur þarna að baki ákvörðunum Þórkötlu,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, um fund bæjarstjórnar með forsvarsmönnum fasteignafélagsins Þórkötlu.
Bæjarstjórnin sakar stjórnvöld um að tefja endurreisn bæjarins. Í gær tilkynnti fasteignafélagið Þórkatla að heimild fyrrverandi eigenda fasteigna, svokallaðra hollvina, til dvalar í húsum sínum yrði takmörkuð við 12 nætur í mánuði.
„Þetta horfir þannig við okkur að við séum að fjarlægjast verkefnið frekar en hitt. Þetta snýst um grundvallarósk okkar um að komast heim. Ef stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um það að hægja á endurreisn Grindavíkur um eitt til tvö ár, þá er bara mikilvægt að segja það og koma með góð rök fyrir því,“ segir Ásrún.