Þingmenn minnihlutans gáfu lítið fyrir svör utanríkisráðherra á fundi utanríkismálanefndar Alþingis um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu í dag. Þeir sökuðu ráðherra meðal annars um að blekkja þjóðina varðandi skilyrði um aðlögun að ESB.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði ekkert til í fullyrðingum um að Ísland yrði að hefja aðlögun að ESB samstundis ef þjóðin veldi að halda áfram viðræðum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að liggja þurfi skýrt fyrir hvað felist í aðild að Evrópusambandinu áður en gengið er til fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Fundurinn var öllum opinn. Meðal þess sem kom til tals var fullveldi, krónan, yfirráð yfir auðlindum og öryggis- og varnarmál.