Yfir sex hundruð hafa sett nafn sitt við undirskriftasöfnun til að mótmæla lokun Foreldrahúss, sem er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með hegðunar-, tilfinninga- og vímuefnavanda.
Úrræðinu verður lokað 1. maí vegna skorts á fjármagni.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sagt að það standi ekki til að endurskoða fjárveitingar til Foreldrahúss.
Berglind Gunnarsdóttir Strandberg, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, segir nauðsynlegt að efla starfsemina með aukinni fjárveitingu.
Ráðherra hafi ekki orðið við beiðni stjórnar um fund vegna lokunarinnar.
Nauðsynlegt að efla starfsemi Foreldrahúss
Berglind segir það gefa auga leið að efla þurfi starfsemi Foreldrahúss en ekki draga hana saman. Aukin neysla og framboð af fíkniefnum í samfélaginu ýti ekki síst undir þörfina á auknum forvörnum.
Starfsmenn Foreldrahúss eru þrír og Berglind segir að ekkert megi út af bregða í starfseminni.
Í fyrra sóttu yfir 1200 foreldrar og hátt í 600 börn ráðgjöf í Foreldrahúsi.
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hefur sagt að í gildi sé samningur til 3. september um rekstur Foreldrahúss.
„Það er líka ástæða til að nefna að hvert viðtal í Foreldrahúsi kostar 22.000 krónur, sem er vel í lagt, myndu flestir telja,“ sagði Inga Sæland.
Berglind segir að það sé ekki rétt að hvert viðtal í Foreldrahúsi kosti 22.000 krónur, líkt og Inga hefur haldið fram.
Foreldrar, og börn, geta leitað í Foreldrahús endurgjaldslaust, með tilvísun frá Reykjavíkurborg, sem hefur samstarfssamning við Foreldrahús.
197 foreldrar, búsettir í öðrum sveitarfélögum, greiddu fyrir viðtöl í Foreldrahúsi árið 2025.
Foreldrar segja úrræðið ómissandi
Móðir sem hefur notið ráðgjafar og stuðnings hjá Foreldrahúsi segir átakanlegt að stjórnvöld ætli ekki að halda úrræðinu opnu.
Hún segir það gefa sér mikið að geta leitað í Foreldrahús og fengið jafningjastuðning annarra foreldra sem séu í sömu sporum og hún.
Börn með fjölþættan vanda vilji aðstoðina sem þar er í boði.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála gerði úttekt á starfsemi Foreldrahúss í fyrra.
Samkvæmt henni er ánægja með þjónustuna, bæði meðal barna og foreldra.