Stígur fram í fyrsta sinn og svarar ásökunum: „Þetta er orðin algjör steypa“
„Ef þú ferð ekki eftir línunni þá áttu í mikilli hættu á að vera tekin og jarðaður með þeim leiðum sem eru í boði,“ segir hann og vísar til umræðu um pólitík, trans málefni og loftslagsmál sem dæmi. Hann telur að þessi þróun hafi skapað menningu þar sem einstaklingar séu útilokaðir úr opinberu lífi án þess að mál þeirra séu skoðuð af sanngirni.
Viðurkennir mistök en hafnar alvarlegum ásökunum
Ingó segir sjálfur að hann hafi ekki alltaf verið fyrirmyndar á yngri árum og viðurkennir að hafa ekki alltaf höndlað frægð vel.
„Ég var aldrei að níðast á neinum eða beita ofbeldi eða nauðga eða neitt,“ segir hann og bætir við að margt af því sem haldið sé fram um hann sé glórulaust. Hann viðurkennir þó að hafa til dæmis reynt við stúlkur á sínum yngri árum, en segir slíkt ekki sambærilegt við þær ásakanir sem á hann hafa verið bornar.
Segir sögur endurteknar án staðfestingar
Í viðtalinu gagnrýnir Ingó einnig hvernig sögur um hann hafi verið endurteknar ítrekað án þess að skýrar staðreyndir liggi fyrir.
„Það er aldrei neinn sem kemur með: hann gerði nákvæmlega þetta,“ segir hann og bætir við að orðrómurinn hafi orðið að eins konar staðreynd í augum margra. Hann nefnir sérstaklega að ásakanir um að hann hafi verið bannaður á skólaböllum eða verið hættulegur ungum stúlkum eigi sér ekki neina stoð í raunveruleikanum.
Dæmi um árásir í kommentakerfum
Ingó lýsir einnig nýlegu dæmi þar sem hann segir umræðuna hafa farið úr böndunum. Þegar hann hafi átt að koma fram í Skógarböðunum á Akureyri hafi hafist skipulögð gagnrýni á netinu. Hann segir meðal annars að kennari við menntaskólann á Akureyri hafi skrifað opinberlega að verið væri að biðja „ógeð sem er að níðast á 15 ára stúlkum“ að koma fram.
„Hvernig getur fólk leyft sér að skrifa svona um manneskju sem það þekkir ekki neitt?“ spyr hann og segir slíkt hafa mikil áhrif á fjölskyldu sína.
Segist hafa fengið nóg
Að lokum segir Ingó að honum sé nóg boðið og að hann vilji koma sinni hlið á framfæri.
„Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu,“ segir hann og gagnrýnir að venjulegt fólk taki þátt í því sem hann kallar ósanngjarna herferð gegn sér. Hann segir konuna sína hafa staðið sem klettur við hlið hans en það sé alveg sama hvað sé gert, alltaf birtist einhver nýr, nafnlaus með upplognar sögur.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt horfa á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.