Bandaríski hasarmyndaleikarinn Steven Seagal, sem naut mikilla vinsælda á níunda og tíunda áratug síðustu aldar, virðist kunna vel við sig í Rússlandi ef marka má myndir sem birtust af honum í vikunni.
Þetta er í fyrsta sinn í níu mánuði sem Seagal sést opinberlega á myndum. Hann hefur búið í Rússlandi um árabil og er þekktur fyrir náin tengsl sín við Vladimír Pútín, forseta landsins.
Seagal, sem er 74 ára, sótti Alþjóðlegu efnahagsráðstefnuna í Sankti Pétursborg (SPIEF) á fimmtudag. Hann var skráður þátttakandi í pallborðsumræðum um menningarmál á ráðstefnunni, sem telst einn mikilvægasti árlegi viðburður Rússlands á sviði efnahags- og viðskiptamála.
Hefur búið í Rússlandi í áratug
Undanfarin ár hefur leikarinn vakið athygli fyrir stuðning sinn við rússnesk stjórnvöld og sérstaklega Pútín forseta.
Þrátt fyrir að vera fæddur í Michigan í Bandaríkjunum fékk Seagal rússneskan ríkisborgararétt árið 2016 og hefur síðan búið að mestu í Rússlandi.
Árið 2018 var hann skipaður sérstakur fulltrúi fyrir mannúðarsamskipti milli Rússlands og Bandaríkjanna. Síðar gekk hann til liðs við stjórnmálaflokk sem styður stjórnvöld í Kreml og lýsti meðal annars yfir stuðningi við innrás Rússa í Úkraínu árið 2022. Þá hefur hann tekið þátt í ýmsum áróðursverkefnum tengdum stríðinu.
Fyrir störf sín á sviði menningar- og mannúðarmála hlaut Seagal rússnesku vináttuorðuna árið 2023.
Var einn sá þekktasti
Auk rússnesks ríkisborgararéttar er Seagal einnig með serbneskan ríkisborgararétt. Í september á síðasta ári var honum boðið til Serbíu af Aleksandar Vučić forseta með það að markmiði að efla menningar- og listatengsl landsins við umheiminn.
Seagal fæddist í Lansing í Michigan árið 1952 en flutti með fjölskyldu sinni til Kaliforníu á barnsaldri. Hann lagði stund á bardagalistir og hóf feril sinn í kvikmyndageiranum sem umsjónarmaður bardagaatriða áður en hann sló í gegn sem leikari.
Á hátindi ferils síns var Seagal einn þekktasti hasarmyndaleikari heims. Hann öðlaðist frægð með kvikmyndum á borð við Above the Law, Hard to Kill, Marked for Death, Out for Justice og Under Siege. Síðar lék hann í fjölda annarra mynda og sjónvarpsþátta, en síðasta kvikmynd hans, Beyond the Law, kom út árið 2019.