Samkomulag um þinglok liggur enn ekki fyrir og starfsáætlun þingsins hefur verið felld úr gildi frá og með morgundeginum. Samkvæmt henni átti að fresta þingi á morgun en nú er útlit fyrir að það starfi fram í næstu viku.
Hlé var gert á þingfundi í hádeginu meðan þingflokksformenn hittust en fundi þeirra lauk án niðurstöðu. Þeir hittast aftur síðdegis en á meðan heldur stjórnarandstaðan uppi umræðu um samgönguáætlun. Helsta bitbeinið í viðræðunum er frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi en stjórnarandstaðan vill einnig að gerðar verði breytingar á frumvarpi um innviðafélag.
Forseti Alþingis staðfestir við fréttatofu að starfsáætlun þingsins verði tekin úr sambandi frá og með morgundeginum. Það gerist iðulega undir lok þings þegar útséð er um að hægt verði að fresta þingi á settum tíma. Þingfundadögum getur því fjölgað ef þörf er á til að ljúka afgreiðslu mála fyrir þingfrestun.
Fréttin var uppfærð eftir að upplýsingar bárust um starfsáætlun frá þingforseta