Samkvæmt reglugerð innviðaráðuneytisins er úthlutun til strandveiða tíu þúsund sex hundruð og fimmtíu tonn af þorski miðað við ellefu þúsund tonn árið á undan. Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að úthlutunin hafi vakið kurr meðal smábátasjómanna en ekki sé þörf á að örvænta.
„Við vitum það þó að það eru 2700 tonn ofan á þetta úr frumvarpinu í sambandi við jöfnunarheimild þannig að þá erum við komin upp í 13350 sem er meira en það var í fyrra,“ segir Kjartan. Þá gerir hann fastlega ráð fyrir því að eitthvað komi úr skiptimörkuðum líka. Tveir slíkir eru eftir fyrir íslenska sumargotssíld og makríl.
„Þannig að það bara stefnir í metár hjá okkur eftir nokkur mögur sumur,“ segir Kjartan.
Strandveiðar geta hafist á mánudaginn 4. maí. Kjartan telur undarlegt að úthlutun hafi verið gerð með þessum hætti en efast ekki um að það eigi sér eðlilegar útskýringar. Stjórnvöld hafi áður gefið í skyn að úthlutunarpotturinn yrði alls 14 þúsund tonn þetta árið.
„Þannig að ég veit ekki alveg af hverju reglugerðin kom út með nákvæmlega þessa tölu núna, af hverju hún kom ekki bara út fjórtán þúsund tonn,“ segir hann.
„En það hljóta að vera einhverjar eðlilegar skýringar á því en hérna en við vitum alveg að ráðherra hefur alveg heimild til þess að gefa út fjórtán þúsund tonna pott.“