Hitabylgjur og þurrkar halda áfram að þjaka Evrópubúa. Heitasti dagur ársins til þessa var í Bretlandi í dag og rúmlega 130 milljónir manna voru í 35 stiga hita eða hærra. Rúmenar slökktu alveg á eina kjarnorkuveri landsins.
Slökktu á eina kjarnorkuverinu
Ástæða þess að Rúmenar slökktu á kjarnorkuverinu er lágt vatnsborð Dónár eftir mikla þurrka. Kjarnorkuverið framleiðir alla jafna um 20 prósent af því rafmagni sem Rúmenar þurfa.
Dóná hefur verið notuð til að kæla þá, sem er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir geislun. Mikill hiti og þurrkar valda því að vatnsborð árinnar er orðið of lágt til kælingar.
Slökkt var á fyrri kjarnaofninum í síðasta mánuði. Stjórnendur Nuclear-electrica SA, sem reka kjarnorkuverið, hafa gripið til ýmissa ráða til að koma í veg fyrir að þurfa að slökkva á seinni ofninum, meðal annars að sprengja berg í ánni til að breyta flæði hennar. Það hefur ekki virkað.
„Í næstu viku, ef nauðsyn krefur, höfum við stæðu 4 frá Rovinari, varaaflstöð Oltenia orkufyrirtækisins, um 300 megavött. Mismuninn, um 600 megavött, má vega upp með varaorku frá Hidroelectrica,“ segir Cristian Busoi, orkumálaráðherra landsins.
„Ekkert okkar hefur gengið í gegnum sumar eins og þetta“
Ekki er útlit fyrir að hitinn og þurrkurinn séu á förum í Evrópu. Greining AFP-fréttaveitunnar gerði ráð fyrir að rúmlega 130 milljónir manns yrðu í 35 stiga hita eða hærra í dag, aðallega í Frakklandi, Ítalíu, á Spáni og Bretlandi.
Heitasti dagur ársins hingað til var í Bretlandi í dag og sá fimmti heitasti frá upphafi mælinga. Rúmega 38 stig mældust í Kew Gardens í Lundúnum.
Fimmta hitabylgja ársins gengur yfir landið og yfir 70 prósent af Englandi og allt Wales eru skilgreind þurrkasvæði. 45 milljónir manna búa á svæðunum.
Ofan á mikla þurrkatíð hefur veðurstofa Bretlands gefið út appelsínugula hitaviðvörun fyrir stóran hluta Englands.
Simon King, veðurfræðingur BBC, segir stefna í heitasta sumar sögunnar.
„Það er ekki komið síðsumar og Veðurstofan hefur sagt að það stefni í hlýjasta sumar frá upphafi mælinga á Englandi. Ekkert okkar hefur gengið í gegnum sumar eins og þetta.“
Annasamt er á bráðamóttöku sjúkrahúsa í Englandi í hitanum og mikið álag á starfsfólki. Stéttarfélag hjúkrunarfræðinga segir dæmi um að þeir hafi hnigið niður á vöktum og aðstæður séu ómannúðlegar og ómögulegar af völdum hitans.
Stjórnvöld lofa aðgerðum til að bæta ástandið, bæði fyrir starfsfólk og sjúklinga. Yvette Cooper, heilbrigðisráðherra landsins, heimsótti sjúkrahús í Watford.
„Við verjum einnig 6,7 milljörðum punda (1.114 milljörðum króna) í endurbætur og viðhald og þá meðtalið nýtt kælikerfi fyrir allar heilbrigðisstofnanir og einnig stuðningur við
starfsfólk heilbrigðiskerfisins, sem hefur aukið við þjónustuna og sinnir fleiri sjúklingum jafnhliða því sem þörfin hefur aukist.“
Fjöldi gróðurelda hefur kviknað í West Midlands, norður af Lundúnum, í dag. Um 100 slökkviliðsmenn hafa barist við stóran gróðureld nærri Stourbridge golfvellinum. Tveir slösuðust í eldunum, samkvæmt slökkviliði, og sex hafa þurft að flýja heimili sín.