Brotaþoli í málinu er starfsmaður sem kom að lögbundinni þjónustu við ákærða. Sumarið 2024 mun skjólstæðingurinn hafa veist að starfsmanninum með hnefahöggi í bakið og í framhaldi stungið hann í hálsinn með blýanti. Hlaut hann punktsár vinstra megin á hálsi, mar á mjóbaki og tognun í brjósthrygg.
Í mars 2025 braut hann svo glerrúðu í útidyrahurð íbúðar starfsmannsins með það fyrir augum að ryðjast inn í íbúðina án heimildar. Maðurinn játaði afdráttarlaust sök í báðum ákæruliðum fyrir dómi.
Í dómnum kemur fram að maðurinn sé í dag rúmlega tvítugur og hafi glímt við einhverja kvilla. Hann var nýverið sviptur lögræði í fimm ár. Fengið var mat geðlæknis sem mat sem svo að refsing gæti ekki borið árangur.
Maðurinn þarf að greiða starfsmanninum 800 þúsund krónur í miskabætur og rúmlega fimmtán þúsund í skaðabætur vegna rúðunnar sem var brotin.