Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að stinga eiginmann sinn með hnífi og bíta hann ítrekað. Var hún reið við hann eftir að pylsuhundarnir þeirra voru svæfðir.
Hin 64 ára Claire Bridger frá Norwich í austurhluta Bretlands játaði glæp sinn fyrir dómara og var dæmd fyrir tilraun til manndráps. Einnig fyrir vörslu eggvopns í almannarými.
Þann 17. júlí í fyrra stakk hún eiginmann sinn, Keith Bridger, með búrhníf í bringuna og í holhöndina. Var hún reið eftir að hundarnir þeirra tveir voru svæfðir. Hundarnir voru af tegundinni Dachshund, langhundar sem eru oft kallaðir pylsuhundar í daglegu tali.
Hjónin voru skilin að borði og sæng og áttu í miklum deilum. Claire keyrði á staðinn þar sem eiginmaður hennar dvaldi þennan dag. Til að byrja með var hún róleg og vildi að eiginmaðurinn myndi borga fyrir tíma í hjónabandsráðgjöf sem hann samþykkti að gera.
Stakk mann sinn og beit
Þá spurði hún hvar hundarnir væru. Þegar hann sagði henni að búið væri að svæfa þá og að hún ætti að vita það þá varð hún óð af bræði.
Keyrði Claire inn á innkeyrsluna og lá á flautunni. Öskraði hún ítrekað út um gluggann: „Þú drapst hundana mína!“ Keyrði hún að eiginmanni sínum í innkeyrslunni þannig að bíllinn snerti hann.
Þá steig hún út úr bílnum og veittist að honum með áðurnefndum afleiðingum. Öskraði hann á hana: „Claire, þú stakkst mig,“ og hún svaraði: „Já og ég ætla að fokkings stinga þig aftur drullusokkurinn þinn, hvernig dirfist þú að drepa hundana mína?“
Claire lét sér það ekki duga að stinga eiginmann sinn heldur beit hún hann líka í lærið, þumalinn, handlegginn og öxlina. Linnti hún ekki látum fyrr en nágranni skarst í leikinn og afvopnaði hana.
Í lífshættu
Sjúkralið mætti fyrst á svæðið eftir að hringt var á neyðarlínuna. Svo mætti lögreglan og var henni tjáð að maðurinn væri í lífshættu. Var Claire þá samstundis handtekin, grunuð um verknaðinn.
Cameron Brown, varðstjóri hjá lögreglunni í Norwich, sagði að málið hefði reynt mikið á herra Bridger, bæði andlega og líkamlega. Hann hafi sýnt mikinn styrk og hugrekki.