SS stefnir á að hætta Halal-slátrun í september

Sláturfélag Suðurlands (SS) stefnir á að hætta Halal-slátrun í september næstkomandi.
Fréttin var fyrst allra miðla með ítarlega umfjöllun í desember síðastliðnum um Halal-slátrun og vottun í öllum stærstu sláturhúsum landsins. Fréttinni bárust svo upplýsingar nýlega um að SS hygðist nú hætta að slátra íslensku lambakjöti að hætti múslima.
Blaðamaður ræddi við Benedikt Benediktsson framleiðslustjóra SS sem staðfesti þetta í samtali og segir hann að félagið hafi tekið ákvörðun um að umræddri sláturaðferð verði hætt, og segir hann að stafi aðallega vegna þess að útflutningur á kjötinu hefur minnkað.
Þá ræddi blaðamaður einnig við Ágúst Torfa Hauksson framkvæmdastjóra Kjarnafæði-Norðlenska, sem staðfesti að málið hafi verið rætt innan stjórnarinnar og félagið sé nú að skoða hvort hætt verði með Halal-slátranir en endanleg ákvörðun hefur þó ekki verið tekin.
Múslimafélagið fær greitt fyrir Halal-vottanir
Fréttinni bárust einnig upplýsingar að múslimafélagið á Íslandi sem gefur út Halal-vottanir og er með múslima í vinnu sem sinnir eftirliti í sláturhúsum, fái greitt fyrir umræddar vottanir. Framkvæmdastjórar tveggja sláturhúsa staðfestu að greiðsla fari fram vegna Halal-vottanna en ekki fékkst staðfest nákvæmlega hversu mikið sláturhúsin greiða til múslimafélagsins fyrir vottanirnar. Ágúst Torfi sagðist þurfa að kíkja í bókhaldið til að skoða það betur en svar viðþeirri fyrirspurn hefur ekki enn borist.
Þegar blaðamaður spurði gervigreindina þá svarar hún því að Halal-vottanir innan Evrópu hlaupi á bilinu 1500-8000€ evra á ársgrundvelli eða frá 220.000 - 1200.000 kr. og má skoða betur hér.
Eftir umfjöllunina í desember sendi Fréttin fyrirspurn á Neytendastofu og benti á vörusvik eftir athugasemd frá kvartanda, þ.e. að lambakjötið sem selt er innanlands er ekki merk Halal-vottað eins og gert er með kjötið sem sent er á erlendan markað. Stofnunin brást svo loksins við og sagði málið ekki forgangsmál hjá sér og myndi því ekki bregðast við að svo stöddu, umfjöllun má lesa hér.
Halal vottorðið sem félag múslima á Íslandi gefur út má sjá hér neðar:
