Hörð orðaskipti urðu milli Ingibjargar Isaksen, þingmanns Framsóknar, og Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær þegar Ingibjörg óskaði eftir skýringum á nýju einkunnakerfi grunnskólanna. Hún vildi vita hvernig nemendur ættu að sýna fram á þá hæfni sem þyrfti til að fá hærri einkunn en sjö og sagði átta og hærra eiga að miðast við umframþekkingu á námsefni og spurði aftur hvernig prófa ætti umframþekkingu.
Inga vísaði meðal annars til þess að níu væri hærra en átta og tíu hærra en níu. Ingibjörg sagðist ruglaðri eftir svör ráðherrans, sem lauk orðaskiptunum á því að segja ekki í sínu valdi að afrugla þingmanninn.
Hvað þarf til að fá hærra en sjö?
Ingibjörg benti á að samkvæmt skýringum ráðuneytisins merkti sjö í lokamati að nemandi hefði náð hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Einkunnirnar átta, níu og tíu ættu hins vegar að lýsa meiri dýpt, sjálfstæði og færni.
Hún spurði hvort nemandi sem svaraði öllu rétt á prófi sem kannaði hæfniviðmiðin fengi þá sjö og hvernig meta ætti þá viðbótarhæfni sem þyrfti til að fá hærri einkunn.
„Ég sem fyrrum kennari á erfitt með að átta mig á þessu,“ sagði Ingibjörg.
Hún gagnrýndi jafnframt að útfærslu breytinganna væri enn ólokið þótt nemendur í tíunda bekk væru komnir langt með lokaár sitt í grunnskóla.
Vísaði í vægi prófa og verkefna
Inga svaraði því til að Ingibjörg virtist ekki átta sig nægilega vel á uppbyggingu skólakerfisins og einkunnagjöf almennt.
Hún nefndi að ritgerðir, verkefnaskil og aðrir námsþættir hefðu mismikið vægi í lokaeinkunn. Nemandi gæti því fengið tíu á lokaprófi en níu í lokaeinkunn.
„Það liggur algerlega fyrir að 10 er 10, háttvirtur þingmaður, og 7 er 7, háttvirtur þingmaður,“ sagði ráðherrann.
Inga sagði breytingunum ætlað að auka jafnræði nemenda og draga úr ósamræmi milli skóla.
„Ég er bara ruglaðri ef eitthvað er“
Ingibjörg sagðist ekki hafa fengið skýringar á því sem hún spurði um. Hún ítrekaði spurninguna um hvernig meta ætti þá þekkingu og færni sem gæfi nemendum átta, níu eða tíu.
„Við erum ekki að ræða bara um eitthvað úti í bæ,“ sagði hún og lagði áherslu á að nemendur þyrftu að vita til hvers væri ætlast af þeim áður en kæmi að útskrift og inngöngu í framhaldsskóla.
Í síðara svari sínu sagðist Inga furða sig á því að kennaramenntaður þingmaður reyndi að kasta rýrð á vinnuna við breytingarnar. Hún sagði níu hljóta að vera hærri einkunn en átta og tíu pínulítið hærri en níu.
„Og það er ekki í mínu valdi að afrugla háttvirtan þingmann ef hann veit ekki hvort hann er að koma eða fara.“
MMS talar um hæfni umfram viðmiðin
Í leiðbeiningum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu frá september merkir sjö að nemandi hafi náð settum viðmiðum. Átta krefst þess að hann sýni að einhverju leyti þekkingu, leikni eða hæfni umfram þau, níu að miklu leyti og tíu að langmestu leyti. Þar er sérstaklega tekið fram að 100% rétt svör jafngildi ekki sjálfkrafa tíu í nýja kvarðanum.
Í síðari skýringum ráðuneytisins er áherslan á meiri dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu hæfninnar.