Yfirvöld í Frakklandi rýmdu úthverfi í norðvesturhluta Parísar í dag meðan sérfræðingar aftengdu sprengju frá seinni heimsstyrjöldinni. Þúsundum var gert að yfirgefa heimili sín meðan á aðgerðinni stóð. Nær 800 lögreglumenn tóku þátt.
Til stendur að eyða sprengjunni og er búist við því að íbúarnir fái að snúa aftur heim síðar í dag.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Sprengjur frá síðari heimsstyrjöld hafa fundist reglulega síðustu áratugi, til að mynda í Þýskalandi.
Hluti Parísar var einnig rýmdur og umferð um Gare Du Nord-lestarstöðina stöðvuð eftir að ein slík fannst í fyrra.