Fjöldi sprenginga heyrðist í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu í nótt. Fréttamenn AFP fréttaveitunnar greindu frá sprengingunum. Íbúar fengu viðvörun frá stjórnvöldum í smáskilaboðum í síma sína, þar sem íbúar voru hvattir til að leita skjóls á öruggum stað vegna ógnar úr lofti eins og það var orðað.
Hernaðarbandalag sem leitt er af Sádi-Aröbum, sagði síðar í færslu á X að loftvarnarkerfi hefði stöðvað og eytt flugskeyti sem Hútar hefðu beint að Ríad. Síðar voru send skilaboð frá almannavörnum sem sögðu hættuna liðna hjá.
Hútar hafa gert tíðar árásir í Sádi-Arabíu að undanförnu. Á sunnudag var árás gerð á Aramco turninn, sem er í viðskiptahverfinu í Ríad en Aramco er gas- og olíuvinnslufyrirtæki Sádi-Arabíu.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu sögðu að minni háttar tjón hefði orðið í árásinni eftir að sprengjubrak féll á bygginguna. Hútar hafa ítrekað gert árásir á flutningaskip Aramco, olíuhreinsunarstöðvar og birgðageymslur í höfuðstöðvum fyrirtækisins.