Spjallið með Frosta Logasyni
Hafa innflytjendur meiri tilhneigingu til að fremja afbrot? Hvað segja rannsóknir frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum? Og hvers vegna virðast niðurstöður vera svo ólíkar milli landa?
Í þessu viðtali ræðir Frosti Logason við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, sem var nýkomin af alþjóðlegri ráðstefnu í Stokkhólmi þar sem fjallað var um tengsl innflytjenda, samþættingar og afbrota.
Meðal þess sem rætt er:
• Staðan í Svíþjóð og vaxandi vandamál tengd glæpagengjum
• Hvers vegna önnur kynslóð innflytjenda virðist standa verr en sú fyrsta í sumum löndum
• Umdeild danska rannsóknin á palestínskum flóttamönnum og afkomendum þeirra
• Munurinn á Evrópu og Bandaríkjunum þegar kemur að innflytjendum og afbrotum
• Hlutverk menningar, félagslegra aðstæðna og velferðarkerfa
• „Grooming gangs“ málin í Bretlandi og viðbrögð yfirvalda
• Hvort ótti við ásakanir um kynþáttafordóma geti haft áhrif á rannsóknir og stefnumótun
• Hvernig afbrotafræðingar nálgast viðkvæm mál sem snerta þjóðerni, uppruna og afbrot
Margrét leggur áherslu á mikilvægi þess að skoða gögn, rannsóknir og samhengi frekar en að draga víðtækar ályktanir af einstökum málum eða fyrirsögnum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift