Að minnsta kosti níu voru drepnir og sextíu eru særðir eftir árásir Rússa í Úkraínu í dag. Þar af særðust 37 í árás á fjölbýlishús í Odessu og tveggja er saknað. Árásirnar voru einnig gerðar á matvöruverslun og tvær bensínstöðvar. Rússar hafa í auknum mæli gert árásir á bensínstöðvar undanfarið, bæði í Kyiv og við hraðbrautir.
Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, kallar eftir viðeigandi viðbrögðum frá bandamönnum Úkraínu, nú þegar Rússar hafa hert sókn sína enn frekar í Úkraínu.
Næstu þríhliða viðræður milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna gætu farið fram í næsta mánuði segir Kyrylo Budanov, skrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu og fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu hersins (HUR).
Kyiv Independent segir frá því að Budanov hafi greint frá þessu í viðtali við fjölmiðla á ráðstefnu í Kyiv. Hann sagði að undirbúningur væri í gangi fyrir þríhliða viðræður, en hann vildi þó ekki segja hvar þær muni fara fram.