Kanadíska söngdívan Celine Dion hélt sína fyrstu tónleika í sex ár í Plenitude Arena í Nanterre, úthverfi Parísar í Frakklandi í kvöld.
Hún hóf tónleikana með laginu „On ne change pas“ og var augljóslega hrærð þar sem hún stóð á sviðinu fyrir framan 30.000 áhorfendur. Franska dagblaðið Le Parisien sagði að fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna Michelle Obama hefði verið meðal gesta á tónleikunum.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu af sextán sem Dion verður með í september og október og þúsundir aðdáenda eru komnir sérstaklega til borgarinnar til að fara á tónleika.
Parísarborg tók vel á móti konu sinni og aðdáendum hennar og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður í borginni Dion til heiðurs, svo sem búningakeppni, risakaraoke og siglingar tileinkaðar henni á Signu.
Þá hefur nafni lestarstöðvarinnar sem þjónar tónleikahöllinni þar sem tónleikar hennar fara fram verið breytt tímabundið í Celine.
Dion hefur haldið sig að mestu fjarri sviðsljósinu síðustu ár eftir að hún var greind með sjaldgæfa taugaröskun árið 2022 sem á ensku kallast Stiff person Syndrome.
Um tíma óttaðist hún að eiga ekki afturkvæmt á sviðið, en með stífri líkams- og raddþjálfun rættist draumur hennar um að syngja aftur fyrir aðdáendur sína.