Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sér ekkert eftir orðum sínum um þingmanninn Dag B. Eggertsson og bróður hans Gauta B. Eggertssyni hagfræðiprófessor. Hlaut hún töluverða gagnrýni fyrir, meðal annars frá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Gagnrýndi Sólveig Anna baráttu þeirra bræðra fyrir að því að já yrði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágústs síðastliðins og setti hana í samhengi við BDSM-blæti og sagði að líklega væri best fyrir þá að taka þátt í gleðigöngunni þann eina dag á ári sem hún fer fram.
Sólveig Anna svarar hörðu viðbrögðunum fullum hálsi - „Ég hefði enn ekkert fengið greitt fyrir ósiðlega hegðun mína“