Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“ - Vísir

Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“ - Vísir

Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég af­sökunar“ - Vísir

Hann hafnar því ekki að hafa beitt sömu aðferð í öðrum háskólum en kveðst ekki ætla að afla sér upplýsinga með þessum hætti aftur. Búið sé að eyða umræddum gögnum og tilgangurinn með upplýsingaöfluninni hafi verið að auglýsa vefnámskeið sem ætlað er að undirbúa nemendur fyrir próf.

Aðalbjörn Jóhannsson, forseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA), varaði í síðustu viku stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi Atla og lítur málið alvarlegum augum. 

Hann hefur áður sagt í samtali við Vísi að ekki mætti deila persónuupplýsingum um nemendur sem séu á innri kerfum háskólans til þriðja aðila og það væri ekki síst varhugavert að sækja slíkar upplýsingar í hagnaðarskyni.

Hafi fallist á allar kröfur SHA

„Aðalbjörn er auðvitað bara að vinna sína vinnu vel og stendur vörð um sína félagsmenn í SHA,“ segir Atli í samtali við Vísi.

„Þeir gerðu ákveðnar kröfur um að ég myndi eyða þessum gögnum og fleira slíkt og augljóslega ekki gera þetta aftur.“ Hann hafi orðið við öllum kröfum Stúdentafélagsins þegar hann fékk bréf frá Aðalbirni á föstudeginum í síðustu viku. „Ég bað SHA afsökunar á þessu öllu og leit í rauninni svo á að þessu máli væri lokið.“

Háskólinn á Akureyri vistar upplýsingar um nemendur í innri kerfum sem bera heitið Uglan og Canvas.Skjáskot

Atli segir upplýsingaöflunina hafa farið fram með þeim hætti að hann setti sig í samband við nemendur sem höfðu áður sótt námskeið á vegum Nóbels námsbúða og óskaði eftir netföngum samnemenda til að auglýsa komandi námskeið sem hann hafi kennt í fjórtán ár.

Þú gerir sem sagt ekki athugasemd við þá frásögn forseta SHA að þú hafir beðið nemendur um að flytja út (e. exporta) einhverja nemendalista úr kerfum og deila með þér?

„Það sem stemmir er að ég hafði samband við mína fyrrverandi nemendur til að óska eftir netföngum til að auglýsa mín námskeið,“ segir Atli í samtali við Vísi.

Hafnar því að hafa villt á sér heimildir

Aðalbjörn hjá SHA sagði Atla hafa gefið nemendum ítarlegar leiðbeiningar um hvernig ætti að nálgast gögnin.

„Í rauninni gerir hann þetta með því að villa á sér heimildir, það er að segja á fölskum forsendum. Hann segist vera í nánu samstarfi við aðila sem er formaður aðildarfélags hjá okkur, sem er ekki rétt,“ sagði Aðalbjörn í samtali við Vísi í síðustu viku.

„Ég tek skýrt fram að ég var ekki að villa á mér neinar heimildir eða reyna að þykjast vera einhver annar en ég var. Öll samskiptin fóru fram í mínu eigin nafni og við mína fyrrverandi nemendur,“ svarar Atli.

Atli segist hafa orðið við öllum kröfum SHA. Nóbel námsbúðir bjóða einnig upp á námskeið í tengslum við áfanga kennda við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.Vísir/Viktor Freyr

Ekki ætlað sér að deila upplýsingunum lengra

Sérðu hvers vegna forseti SHA gerir athugasemdir við þetta út frá persónuverndarsjónarmiðum?

„Varðandi það sjónarhorn þá kemur líka skýrt fram í bæði svarinu og yfirlýsingunni [til SHA] að þessi netgögn voru eingöngu ætluð þeim tilgangi sem ég lýsti: að auglýsa námskeið fyrir komandi skólavetur. Þetta var ekki neitt sem átti að fara í hendur á einhverjum öðrum í einhverjum öðrum tilgangi en ég var að lýsa. Það er nú svona það mikilvægasta sem mig langaði að segja um þennan persónuverndarvinkil.“

Í persónuverndarstefnu Háskólans á Akureyri, sem rekur kerfið sem geymdi upplýsingarnar, segir eftirfarandi: „Háskólinn á Akureyri afhendir ekki persónuupplýsingar til þriðja aðila nema honum beri lagaleg skylda til þess, skráður einstaklingur hafi óskað eftir því eða gefið upplýst og óþvingað samþykki fyrir því.“ 

Burtséð frá þessu voru það tæknilega séð nemendur sem afhentu upplýsingarnar í þessu tilviki.

Hafnar því ekki að hafa notað sömu aðferð víðar

Hefur þú aflað þér upplýsinga um nemendur með þessum hætti áður?

„Ertu að meina með þessum nákvæmlega sama hætti?“

Já, með því að hafa samband við gamla nemendur og biðja þá um að senda þér nemendalista.

„Ekki eins og Aðalbjörn er að lýsa þessu en ég myndi bara vilja vitna aftur í yfirlýsinguna frá mér.“

En með aðra háskóla, hefur þú verið að nota sömu aðferðir þar?

„Allar þessar kröfur sem ég varð við strax á föstudaginn, og eins og kom fram bæði í svarinu mínu til Aðalbjörns og í yfirlýsingunni sem ég get sent þér, þá gildir þetta um starfsemi Nóbels námsbúða í heild, það er að segja ekki bara gagnvart Háskólanum á Akureyri heldur gagnvart öllum háskólum.“

Já, þú átt við í framhaldinu en hefur þú gert þetta í tengslum við aðra háskóla, til að mynda fyrrverandi nemendur þína sem ganga í Háskóla Íslands, Háskólann við Bifröst eða aðra?

„Við höfum aldrei kennt neitt við Bifröst en ég hugsa að það sé nú bara best að ég sendi þér þessa yfirlýsingu.“ 

Atli dró síðar boð sitt um að deila tölvupósti sínum til SHA til baka með vísan til þess að í honum væru einstaklingar nafngreindir. Hann óskaði þess í stað eftir því að fá birta eftirfarandi yfirlýsingu:

„Það er rétt að ég hafði samband við fyrrverandi nemendur mína hjá Nóbel námsbúðum og bað þá um netföng í þeim tilgangi að auglýsa námskeið fyrir komandi skólaár. Það var rangt af mér og fyrir það biðst ég afsökunar.

Ég hef kennt námskeið hjá fyrirtæki mínu, Nóbel námsbúðum ehf., í yfir 14 ár og aðstoðað nemendur við að undirbúa sig fyrir lokapróf og ná lengra í námi sínu. Um 1.100 þeirra hafa verið nemendur við Háskólann á Akureyri og hefur ánægja þeirra með kennsluna verið með allra besta móti.

Ég vil taka fram að ég gerði ekki tilraun til að villa á mér heimildir í umræddum beiðnum. Samskiptin fóru öll fram í mínu nafni og við fyrrverandi nemendur mína.

Forseti SHA hafði nýlega samband við mig vegna málsins og lagði fram skýrar kröfur sem ég varð þegar við. Ég lét hann jafnframt vita að ég hefði orðið við þeim. Kröfurnar fólust meðal annars í því að eyða öllum netföngunum og hafa ekki aftur samband við nemendur í þessum tilgangi.

Eins og fram kom í svari mínu til forseta SHA gildir þetta um starfsemi Nóbel námsbúða í heild en ekki aðeins samskipti fyrirtækisins við nemendur Háskólans á Akureyri.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

#bót #eftir #lofar #var #varað

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933938d/lofar-bot-eftir-ad-varad-var-vid-honum-rangt-af-mer-og-a-thvi-bidst-eg-afsokunar-

📰 Aðrar fréttir

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
📅 28.10.2026 👁️ 1
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
Mynd Það er auðvelt að segjast standa með landsbyggðinni.
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
Þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin fyrir morð á tveimur mönnum, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni, en Natan var bóndi á Illugastöðum. Bróðir Natan...
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
📅 28.10.2026 👁️ 1
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
Leiðtogar og sendinefndir 48 Afríkuríkja eru væntanlegir til Moskvu í dag og á morgun til að sitja Rússlands-Afríkuráðstefnuna svonefndu, en hún er nú...
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
Efri deild franska þingsins hefur samþykkt að frumvarp sem miðar að því að gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga fyrir tjóni sem hlýst af götumótmælum ...
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 3
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 3
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 3
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 3
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 4
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 3
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 3
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 4
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 3
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 4
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 4
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 4
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 4
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 3
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 4
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...