Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið - Vísir

Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið - Vísir

Óttast að fjár­magn til náms­gagna rati ekki rétta leið - Vísir

Samkvæmt því sem hefur komið fram á meirihluti fjármagnsins að fara í ný námsgögn á grunnskólastigi með áherslu á STEAM-greinar en einnig hefur verið fjallað um fjölbreyttari námsgögn á framhaldsskólastigi samkvæmt fjárlögum.

Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna, segir þetta ánægjulegt en það eigi þó enn eftir að staðfesta að ekki sé um að ræða tilfærslu á fjármagni. 

Þrjár sviðsmyndir í boði

Hún segir þróunarsjóðinn sjá fyrir sér í raun þrjár sviðsmyndir: að fjármagnið fari áfram í miðstýrða námsgagnaútgáfu, að það fari í vélþýðingar á erlendu námsefni og í þriðja lagi að það fari beint í námsgagnasjóð.

„Ef þetta er eins og stendur í frumvarpi til fjárlaga og sjóðirnir halda sér, það fjármagn sem hefur verið inni í miðstöðinni heldur sér, þá þarna er þetta náttúrulega umtalsverð hækkun miðað við það sem hefur verið,“ segir hún en sjóðurinn hefur ítrekað bent á að fjármagn til námsgagnagerðar hafi verið verulega skert síðustu tvo áratugi. Íris segir að þó svo að áhersla sé á STEAM-greinar í þessu fjármagni sé þörf alls staðar.

Sjá einnig: Ára­tuga fjár­svelti náms­gagna bitni á skóla­starfi á öllum stigum

„Það hefur ekki verið gefin út nema ein heimilisfræðibók síðastliðin 50 ár. Þannig að það eru alls konar þættir líka sem við erum með inni í okkar skólakerfi sem er ekki verið að styðja við með þessari áherslu, þótt við náttúrulega fögnum þessari áherslu.“

Íris segir þetta vel í takt við aukna áherslu ráðuneytisins á stærðfræði næstu þrjú árin og styðji við niðurstöður í PISA-könnun sem hafi verið slæmar í stærðfræði og vísindum.

„Áhersla næstu þriggja ára verður á kjarnaefni í starfsfræði, næstu þrjú árin, sem okkur finnst ótrúlega áhugavert,“ segir hún og að ef verði af sviðsmynd eitt verði niðurstaðan sú að fjármagnið fari í menntamálaráðuneyti eða Miðstöð náms og þjónustu til þess að búa til „námsbókina“. Þá sé ein námsbók búin til fyrir fagið sem sé í boði fyrir alla kennara.

„Og þá líklega fer allt þetta fjármagn bara í að gera stærðfræðinámsefnið nýtt.“

Íris segir líka skipta verulegu máli hvort um sé að ræða einskiptisaðgerð eða hvort þetta fjármagn eigi að fylgja í fjárlögum næstu ár.

„Þá erum við að horfa á það að þessar stofnanir geta búið til kjarnaefni í öllum námsgreinunum sem við þurfum næstu svona 10 til 15 árin.“

Hætta á að staðan verði sú sama 2040

Það sé þó alltaf hætta á því að sé spólað áfram til ársins 2040 verði staðan sú sama og hún er í dag. Kennarar standi uppi með úrelt námsefni.

„Það er að segja, við verðum bara með nýtt gamalt efni út af því að umskiptingin verður ekki nógu hröð,“ segir hún og að það sé ólíklegt, að hennar mati, að „skútunni“ verði snúið við með þessum hætti.

Í kynningu sinni fyrr í vikunni, þegar Inga Sæland ræddi bæði niðurstöður úr PISA-könnun og aðgerðir ráðuneytisins til að bregðast við, nefndi hún að það væri hennar ósk að kennarar gætu fengið frí á kvöldin og um helgar frá námsgagnagerð. Íris segir að þó svo að hún hafi eflaust viljað vel með þessum orðum endurspegli þau á sama tíma þekkingarleysi á því hvernig námsgögn nýtast raunverulega í kennslustofunni. Einn helsti vandi kennara sé að námsgagnaútgáfan sé miðstýrð.

„Það sem hefur verið vandinn hérna heima er að við erum eitt fárra landa sem eru með miðstýrða námsgagnaútgáfu. Það er að segja, það er bara kjarnaefni sem að ríkið í rauninni gefur út í gegnum stofnun og það er það sem er kennt. Annars staðar hafa kennarar faglegt frelsi til þess að velja það námsefni sem þeir telja hæfa sínum nemendahóp hverju sinni, út af því að það eru ekkert öll börn eins eða allir hópar alls staðar á landinu eins. Það er mismunandi efni sem hentar mismunandi fólki til þess að læra og eitt kjarnaefni, og miðstýrt kjarnaefni, er ekki að leysa þann vanda.“

Kennarar vilji fjölbreytt námsefni fyrir ólíka hópa

Hún segir þetta í raun helsta hvata þess að kennarar búi til sitt eigið kennsluefni en kannanir hafa sýnt að um 70 prósent kennara noti oft heimatilbúið námsefni og um 90 prósent einhvern tímann.

„Í hverri einustu kennslustofu er hver einasti kennari að eyða ofboðslega miklu af sínum undirbúningstíma í að búa til námsefni sem hentar sínum nemendum. Þetta er ofboðslega slæmt af því að það sem fræðin segja okkur er að ef það er ekki fjölbreytt námsefni í boði þá munu jaðarhópar, eða börn sem eru ekki að falla undir mjög svona eðlilegan þröngan ramma, falla aftur úr og það er það sem við erum að horfa á líka.“

Fram kom til dæmis í PISA-niðurstöðunum að aðeins 28 prósent innflytjendabarna á Íslandi uppfylla viðmið um lesskilning. Íris segir þetta því að raungerast á Íslandi og það megi einnig sjá í því að börnum í sérkennslu hefur fjölgað úr fimmtán prósentum í um 33 prósent á 25 árum.

„Kennararnir okkar eru að hlaupa ofboðslega hratt með það sem þeir hafa í höndunum. Þeir hafa bara ekki samsvarandi tól og til dæmis þessir kennarar sem er verið að bera okkar kennara saman við með þessum PISA-könnunum. Þeir eru ekki með sömu tól og kennarar á Norðurlöndunum. Samt eru kennarar á Norðurlöndum líka að horfa á lækkun,“ segir Íris.

Hún segist óttast að aðeins sé um að ræða tilfærslu fjármagns, ekki nýtt fjármagn.

„Það hafa verið tvær stoðir undir námsgögnum, annars vegar Þróunarsjóður námsgagna sem styður aðila sem eru ekki í miðstöðinni til þess að búa til sitt eigið efni og svo Námsgagnasjóður, sem á að veita þetta frelsi, út af því að í lögum hafa kennarar faglegt frelsi til þess að velja námsgögn. Þeir hafa hins vegar bara ekkert fjármagn til þess.“

1.500 gæti orðið 12 þúsund

Hún segir fjármagnið sem kennarar hafa í raun óverulegt.

„Fjármagn sem kennarar hafa í höndum til að kaupa námsefni utan þess sem kemur beint frá ríkinu er svona um það bil 1.500 krónur á nemanda fyrir öll fög fyrir allt skólaárið. Og bara eins og við þekkjum í dag, þú færð ekkert fyrir 1.500 krónur.“

Raungerist sviðsmynd, sem hún þó telur ólíklega, að fjármagn ráðherra sé að fara beint inn í Námsgagnasjóð væri það verulega jákvæð þróun.

„Þá færi þessi upphæð úr 1.500 krónum í 12.000 krónur á barn eða um það bil svona 250 til 300.000 krónur fyrir meðalbekk hjá kennara, og það er eitthvað sem kennarar geta gert með.“

Íris segir að með slíku fjármagni gætu kennarar raunverulega fjárfest í fjölbreyttum námsgögnum sem henta börnunum þeirra og það geti verið allt frá bókum til spila.

„Það væri ýmislegt til inni í skólastofunum, alls konar hlutir sem maður gæti gripið í fyrir ólíka nemendahópa. Það væri miklu meiri umbylting ef við beinum fjármagninu þangað en við erum ekkert sérstaklega bjartsýn á það.“

Hún segir reglulega koma gagnrýni á sjóðinn því fólk telji ekki nægilega marga vera að gefa út námsgögn en það sé í raun mjög eðlilegt þegar fjármagnið er svona lítið og lítil tekjuöflun í boði.

„Það er ekki raunhæft sem aðili sem langar til þess að vera í námsgagnaframleiðslu að ætla sér að framleiða námsgögn sem eru virkilega góð í gæðum þegar þú færð hvað, fjóra, fimm mannmánuði til þess að búa til námsgögn frá grunni og enga möguleika á tekjuöflun í kjölfarið. Þú getur alveg búið til eitthvað en það breytir litlu ef það er ekkert fjármagn fyrir kennara til þess að versla af þér.“

Hún segir vel hægt að gera flott efni frá grunni og þau sjái líka fyrir sér að það væri hægt að þýða og staðfæra og þannig selja erlendis. Þá gæti þróunarkostnaður fallið á fleiri.

Íris segir líka hafa verið erfitt að heyra ráðherra tala um notkun gervigreindar í viðtali við Kastljós í vikunni.

„Það var ýtt á ráðherra í viðtalinu um að þetta væri ekki næg upphæð og þá segir ráðherra að það væri nú hægt að gera svo mikið við þetta úr því við gætum bara nýtt gervigreindina og þýtt erlent efni sem væri frítt á netinu. Ég vona innilega að þetta hafi verið sagt svona til þess að reyna að svara einhverju en að þetta sé ekki raunveruleg stefna ráðuneytisins. Því það er náttúrulega væri mjög alvarlegt ef við erum að horfa á það að við ætlum að vélþýða erlent efni og það eigi að bjarga námsgögnum fyrir íslenska skóla.“

Myndi ekki hjálpa börnum að vélþýða efnið

Þó svo að tækninni hafi fleygt fram þá sé íslenskan í vélþýddu efni ekki nægilega góð.

„Gervigreindin er enn þá að búa til hugtök þótt við séum að reyna að segja henni að gera það ekki. Þannig að við erum ekki að fara að horfa á betri málnotkun hjá börnunum okkar, sem nú þegar er slæm, með því að vera með vélþýtt erlent efni.“

Hún segir það stóra ákvörðun hvernig svona fjármagn er nýtt.

„Þetta er ákvörðun sem mun hafa ofboðslega mikil áhrif á okkar samfélag og ég held að við séum ekki alveg að horfa nógu mikið á stóru myndina, á framtíðina, út af því að framtíð landsins okkar er inni í skólanum núna.

Hún segir kennarasamfélagið óttast að það verði sviðsmynd eitt sem raungerist, að fjármagnið fari allt í að framleiða eitt kjarnaefni og staðan verði orðin sú sama eftir tíu til fimmtán ár.

„Það þarf því að liggja skýrt fyrir hversu mikið nýtt fjármagn kemur raunverulega inn í málaflokkinn, hversu stór hluti þess fer til grunnskólans, hvort hækkunin sé varanleg og eftir hvaða leiðum fjármununum verður ráðstafað.”

#fjármagn #námsgagna #rati #til #óttast


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933500d/ottast-ad-fjarmagn-til-namsgagna-rati-ekki-retta-leid

📰 Aðrar fréttir

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
📅 28.10.2026 👁️ 1
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána
Mynd Það er auðvelt að segjast standa með landsbyggðinni.
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Af­kom­endur síðasta böðuls á Ís­landi búa enn á Illuga­stöðum - Vísir
Þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin fyrir morð á tveimur mönnum, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni, en Natan var bóndi á Illugastöðum. Bróðir Natan...
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
📅 28.10.2026 👁️ 1
Rússar bera víurnar í Afríkulönd
Leiðtogar og sendinefndir 48 Afríkuríkja eru væntanlegir til Moskvu í dag og á morgun til að sitja Rússlands-Afríkuráðstefnuna svonefndu, en hún er nú...
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þingið vill gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga
Efri deild franska þingsins hefur samþykkt að frumvarp sem miðar að því að gera mótmælendur fjárhagslega ábyrga fyrir tjóni sem hlýst af götumótmælum ...
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 3
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 3
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 3
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 3
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 4
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 3
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 3
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 4
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 3
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 4
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 4
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 4
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 4
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 4
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 3
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 3
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 4
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...