Íslenskir lögreglumenn fóru til Spánar fyrir helgi og sóttu mann sem setið hefur í gæsluvarðhaldi þar í landi í tengslum við rannsókn á andláti á Kársnesi í Kóopavogi fyrr í mánuðinum.
Sakborningurinn, sem er pólskur ríkisborgari, var handtekinn á Spáni og hafði setið í gæsluvarðhaldi þar í rúmar tvær vikur. Maðurinn kom til landsins í fylgd lögreglu seint á föstudagskvöld og er nú gæsluvarðhaldi hér á Íslandi. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.
Tveir eru gæsluvarðhaldi vegna málsins, auk mannsins sem sóttur var frá Spáni, situr annar pólskur maður í varðhaldi í Póllandi en lögregla vinnur að því að koma honum til landsins.
Mennirnir eru í haldi vegna manndráps á Kársnesi í Kópavogi þann 9. ágúst. Maðurinn sem lést var pólskur ríkisborgari á fimmtugsaldri en hann hafði verið búsettur hér á landi undanfarin misseri. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn utandyra með mikla áverka og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann stunginn og sýru skvett á hann.
Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi, en voru handteknir á Spáni og í Póllandi, voru á Íslandi þegar manninum var ráðinn bani.
Íslenskur ríkisborgari sat einnig í gæsluvarðhaldi en það rann út í dag og var ekki framlengt. Hann sætir nú farbanni.
Alls voru þrettán handteknir í tengslum við málið, ellefu hér á landi, en tveir erlendis sem sæta nú gæsluvarðhaldi.
Málið er talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoðað við rannsóknina.
Ævar Pálmi segir að rannsókninni miði vel en hún sé umfangsmikil. Lögregla sé með góða mynd af atburðarásinni.
„Nú sitja þessir tveir sakborningar í gæsluvarðhaldi og við erum, eins og ég sagði áðan, að vinna að því að koma þeim sem er í Póllandi til landsins.“