Hótel í Reykjavík hafa hækkað verðið miklu meira en þau spænsku þar sem sólmyrkvinn mun sjást þann 12. ágúst næstkomandi. Verðið í Reykjavík er 212 prósentum yfir meðalverði ársins.Þetta kemur fram í greiningu miðilsins Hotel News Resource sem kannaði verðhækkanir á fjórum stöðum þar sem sólmyrkvinn mun sjást. Það er í Reykjavík og þremur spænskum borgum, A Coruna og Santiago de Compostela í Galisíu og Bilbao í Baskalandi.
Sólmyrkvinn á Íslandi og Spáni – Íslensk hótel hafa hækkað verðið miklu meira en þau spænsku