Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára - MBL.IS
📅 2026-05-26 11:27:00
👁️ 2 lesið
Nýlega fann líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun lifandi eintak af kuðungi sem nefnist fjörudoppa og getur orðið mjög stór. Mun það vera fyrsta fjörudoppan á Íslandi svo vitað sé í 1,1 milljón ára, en það er aldur steingervinga kuðungsins sem hafa fundist í setlögum í Búlandshöfða á Snæfellsnesi.
Fjörudoppa, sem á ensku kallast common periwinkle, er algeng í Vestur-Evrópu, frá Spáni og norður í Hvítahaf og við austurströnd Norður-Ameríku.
Margar nýjar lífverur undanfarið
Svanhildur Egilsdóttir, líffræðingur og ljósmyndari hjá Hafrannsóknastofnun, var að undirbúa fjörudag í Gróttu þegar þessi væni kuðungur varð á vegi hennar. Hann var óvenjulegur svo hún tók hann með heim. „Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég fór að skoða hann betur hvað þetta var merkilegt,“ segir Svanhildur í samtali við 200 mílur.
„Það er líka hálfógnvænlegt hvað það er að koma mikið af nýjum lífverum inn í lífríki okkar.“ Hún segir það hafa færst í vöxt en þegar blaðamaður sló fyrst á þráðinn til hennar var hún einmitt að vakta svonefnda svartserki, sniglategund sem á sér náttúruleg heimkynni í Kyrrahafi en fannst við Ísland árið 2020 og hefur breiðst hratt út síðan.
Þörf á vöktun og skýrri reglugerð
Svanhildur segir þessar sniglategundir geta haft töluverð áhrif á lífríkið. „Fjörudoppa er öflug þörungaæta og étur þörunga sem geta bundið set, þannig að hún getur haft áhrif á fjörugerð. Hún getur líka haft töluverð áhrif á aðrar lífverur og veitt öðrum þörungaætum samkeppni.“
Þótt ekki sé hægt að fullyrða það eru góðar líkur á því að svona lífverur berist hingað með kjölvatni skipa en að sögn Svanhildar þyrfti að vera mun öflugri vöktun á nýjum lífverum og skýrari reglugerð.
„Á Nýja-Sjálandi eru skip til dæmis hreinsuð áður en þau koma í hafnir. Þar er virkilega fylgst með því að það sé ekki eitthvað að berast með þeim,“ segir hún. „Það er vonandi að við förum að taka okkur á í þessum málum.“
Fjörudoppan er náskyld klettadoppu og þangdoppu sem eru algengar á Íslandi en töluvert minni.
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.