Íslendingurinn sem lést í fallhlífarslysi í Danmörku í gærmorgun var nemandi við Nordfyns-lýðháskólann skammt frá bænum Bogense.
Skólayfirvöld birtu færslu á Facebook-síðu skólans í morgun þar sem staðfest var að hinn látni hefði verið nemandi þar.
„Það er með mikilli sorg sem við hjá Nordfyns Højskole tilkynnum að einn af nemendum skólans er látinn í kjölfar hörmulegs slyss við fallhlífarstökk í gær, sunnudaginn 26. apríl.”
Sjá einnig: 24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku
Kemur fram í færslunni að skólinn hafi virkjað viðbragðsáætlun og boðið nemendum og starfsfólki stuðning á þessum erfiðu tímum. Hugur skólastjórnenda væri hjá fjölskyldu, vinum og samnemendum hins látna.
Fram kom í gær að Íslendingurinn, sem var 24 ára, hefði verið á fallhlífarstökksnámskeiði hjá fallhlífarklúbbnum í Óðinsvéum, Odense Faldskærmscenter. Í tilkynningu Nordfins-lýðháskólans kemur fram að skólinn hafi átt í samstarfi við klúbbinn.
„Samstarfið hefur gefið nemendum okkar tækifæri til að fá bóklega kennslu og upplifa fallhlífarstökk utan hefðbundinnar kennslu skólans,” segir enn fremur í tilkynningunni.
Flemming Olson, fyrrverandi formaður danska fallhlífasambandsins, varð vitni að slysinu í gær. Í frétt Vísis, sem vísaði í viðtal danska miðilinn Fyens Stiftstidende, kom fram að Flemming hefði séð fallhlíf mannsins opnast en í kjölfarið hafi hún byrjað að snúast.
„Ég sé að ekki er allt með felldu. Því miður er hún snúin alla leiðina niður til lendingar,“ sagði Flemming. Fram kom að hann væri sjálfur nýkominn úr fallhlífarstökki og nokkrir hefðu verið á svæðinu og fylgst með.