Honum tókst þó að berja dýrið af sér og hljóp út. Hinn maðurinn komst líka lífs af en báðir leituðu til næsta sjúkrahúss.
Hlébarðinn var lokaður inni í versluninni og kom teymi frá dýragarði á vettvang og svæfði dýrið. Það var síðan tekið á brott eftir um fimm klukkustunda veru í versluninni.
Talið er að dýrið sé um fjögurra til fimm ára gamalt, samkvæmt frétt Times of India og var því síðan sleppt út í náttúruna. Verið er að rannsaka hvaðan dýrið kom en ekki liggur fyrir hver örlög þess urðu.
Atvikið var fangað með öryggismyndavél í versluninni.
A leopard burst into a liquor store in India and attacked a terrified worker after injuring multiple others in a frightening morning rampage.
— Fox News (@FoxNews) July 22, 2026
The big cat allegedly attacked a volunteer who was investigating earlier leopard sightings before it charged into the store, where it… pic.twitter.com/GkXy63QRiw
Annar hlébarði er talinn hafa banað 88 ára gömlum manni annars staðar á Indlandi um síðustu helgi. Þá réðst dýr á mann í Uttar Pradesh-héraði en dýrið var gómað á mánudaginn. Þar var um að ræða kvenkyns dýr sem talið er vera fimm ára gamalt.