Skylmingaþrælar nútímanns

Skylmingaþrælar nútímanns

Skylmingaþrælar nútímanns

Skylmingaþrælar nútímanns

Hetj­urn­ar heyja sín­ar orr­ust­ur frammi fyr­ir múgi og marg­menni sem kem­ur sam­an á ógn­ar­stór­um leik­vöng­um og hvet­ur þá til dáða.

Skarkala heimsins linnir ekki þótt heimsmeistaramótið í knattspyrnu renni sitt skeið og hetjur vallarins fái verðskuldaða hvíld. Þeirri hugmynd skaut upp í huga minn að kapparnir sem þarna öttu kappi séu einskonar arftakar skylmingaþræla Rómarveldis til forna. 

Hetjurnar heyja sínar orrustur frammi fyrir múgi og margmenni sem kemur saman á ógnarstórum leikvöngum og hvetur þá til dáða. Með tilkomu sjónvarps og internets eru áhorfendurnir taldir í milljónum eða jafnvel milljörðum. 

Markaðsmaskínur heimsins malla og mala og úr verður hin mesta kakófónía. Samlíkingin við skylmingaþrælana er reyndar heldur hæpin að því leiti að flestir knattspyrnumennirnir fá greiddar fúlgur fjár fyrir að taka þátt og fjölmargir þeirra eru á mála hjá fyrirtækjum sem hagnast á því að tengjast nöfnum þeirra, útliti og persónuleika. 

Þegar þeir taka dýfur á vellinum er það til þess gert að fanga athygli dómaranna sem verðlauna þá oft fyrir fallegar aðfarir með auka- eða vítaspyrnum. Hins vegar fengu skylmingaþrælar yfirleitt ekkert greitt og þegar þeir féllu var það iðulega vegna þeirra áverka sem þeir hlutu. 

Kæmust þeir lifandi frá hildarleiknum, sem þeir tóku þátt í fyrir keisara og æstan lýð Rómarveldis, áskotnaðist þeim hluti þeirrar peningagreiðslu sem eigandi þeirra fékk en helsta umbunin var að fá að tóra fram að næstu keppni. 

Einnig var talsverður hópur bardagamannanna frjálsbornir Rómverjar sem vildu rétta fjárhag sinn af með því að skylmast við aðra menn. Líkt og fótboltakappar nútímans urðu þeir allra flinkustu stórstjörnur meðal landa sinna og gátu lifað hátt.

En Infantino, hinn svissneski forseti FiFA hefur nú bakkað með tillögu sem olli miklu fjaðrafoki og andstöðu innan sambandsins. Málið snerist um það að heimila sölu á eignarhlutum í viðburðum FIFA til einka aðila. Nú stendur Infantino höllum fæti og hugsanlegt er að hann verði látinn víkja vegna þessa máls og annarra sem komu upp fyrir og á meðan á mótinu stóð.

Í kreppuStaða Gianni Infantino hefur veikst verulega á síðustu vikum eftir að áform hans um að selja hlut í stórmótum FIFA voru afhjúpuð.

Hinn fallegi leikur

Ég fylgdist satt að segja meira með þessu heimsmeistaramóti en flestum öðrum sem haldin hafa verið á minni ævi. Þessi staðhæfing um áhuga minn á heimsmeistaramóti í knattspyrnu kann að koma mörgum sem þekkja mig á óvart en fótbolti er hið áhugaverðasta sport þegar ekki er endilega verið að horfa á leikinn sjálfan heldur það sem gerist áður en dómarinn blæs í flautuna og eftir að hann flautar leikinn af. 

Viðbrögðin að leik loknum og það sem gerist utan vallar vekja almennt mesta forvitni hjá mér.  Ekki er úr vegi að nefna háttalag leikmanna argentínska liðsins, bæði eftir að þeir unnu sigur á liði Englands og eftir að þeir töpuðu fyrir liði Spánar í úrslitaleik mótsins. 

Eftir að argentínsku leikmennirnir höfðu malað Englendingana fengu nokkrir þeirra lánaðan fána sem stuðningsmenn þeirra veifuðu í stúkunni á meðan á leiknum stóð. Á fánanum stóð þetta: LAS MALVINAS SON ARGENTÍNA, sem þýðir „Falklandseyjar eru argentínskar.“ 

Falklandseyjar hafa verið þrætuepli milli Bretlands og Argentínu lengi. Eyjarnar hafa verið á umráðasvæði Breta síðan 1833 en Argentínumenn telja sig eiga tilkall til þeirra. Árið 1982 skarst svo í brýnu þegar Leopold Galtieri, höfuðpaur herforingjastjórnar Argentínu, vantaði eitthvað til að beina augum heimamanna frá því volæði sem stjórnin hafði valdið í landinu. 

Þegar í hraðbakkann slær og basl er heimafyrir þykir oft gott að ráðast í stríðsrekstur sem og varð rauninn þann 2. apríl 1982. Argentínski herinn réðist á Falklandseyjar og hernam þær.  

Þáverandi forsætisráðherra Bretlands, Margrét Thatcher, og ríkisstjórn hennar sendu umsvifalaust flotadeild af stað til þess að endurheimta eyjarnar. Úr varð stríð sem endaði með því að Argentínumenn voru hraktir á flótta og breska krúnan hélt áfram að sýsla með málefni Falklandseyja og gerir enn. 

Auðvitað er eins með þessi átök og önnur að talsvert mannfall varð. 649 Argentínumenn féllu í valinn, 1.657 særðust og 11.313 voru handsamaðir. Alls féllu 255 Bretar, 775 særðust og 107 voru handsamaðir. Líkt og athæfi knattspyrnumannanna argentínsku sýnir er þetta mál alls ekki gleymt.

Spánverjar höfðu loks betur í úrslitaleik mótsins og enn voru Argentínumenn í sviðsljósinu. Þeir grétu tapið sárt og svo fór að einn leikmaður þeirra réðist á leikmann og leikmenn spánska liðsins. 

Að lokum voru sigurlaunin afhent og Donald Trump Bandaríkjaforseti og Gianni Infantino, forseti FIFA heilsuðu öllum leikmönnum og hengdu verðlaunapeninga um háls þeirra. Það tók forsetana drjúga stund að koma sér af verðlaunapallinum þar sem spánska liðið beið þess að hampa bikarnum og fagna sigrinum.

Hverjum sýnist sitt þegar þetta mót er gert upp og sú nýbreytni að hafa hálfleik innan hvors hálfleiks er ennþá umdeild. Svokölluð drykkjarpása, þriggja mínútna hlé, þjónar fyrst og fremst sjónvarpsstöðvunum sem sendu út frá mótinu svo þær gætu skotið inn auglýsingum. 

Svo var það hinn ógnarlangi hálfleikur í úrslitaleiknum sem minnti mig óneitanlega á Superbowl skemmtunina í febrúar ár hvert sem Bandaríkjamenn hafa í miklum hávegum.  

Ofurskálin, úrslitakeppnin í bandaríska fótboltanum, er mikil hátíð þar sem stjörnufans kemur fram í leikhléi og fyrirtæki keppast um að koma vörum sínum á framfæri í rándýrum auglýsingatímum. Sýnist sitt  hverjum um gæði þess viðburðar.

Önnur mót og fleira

Ég hef almennt ekki verið mikill áhugamaður um íþróttir og sér í lagi hef ég haft takmarkaðan áhuga á knattspyrnu. Ég kann grunnreglur leiksins en hef enga ánægju af því að vera áhorfandi á vellinum þar sem 22 leikmenn kljást um einn bolta í 90 mínútur með það markmið að skora örfá mörk. 

Sér í lagi skortir mig áhuga á því sem gerist á íslenskum sparkvöllum að sumri til. Næðingur og nepja koma upp í hugann og stundum bætist rennblaut rigningin við.  Ég legg líka til að reglan um rangstöðu verði felld úr gildi! 

Fyrir margt löngu var mér nokkur ár í röð falið að vinna þætti fyrir RÚV, sem teknir voru upp í Vestmannaeyjum. Umfjöllunarefnið var Tommamótið í knattspyrnu. Skemmtilegt samverkafólk bjargaði geðheilsu minni enda sýndi það áhugaleysi mínu um þessa íþrótt mikinn skilning. 

Mót af þessu tagi eru auðvitað mikilvæg fyrir þátttakendurna sem leggja sig öll fram um að vinna sína leiki og öðlast óneitanlega mikla og góða reynslu sem nýtist þeim síðar. Athæfi foreldra vakti mesta athygli mína. 

Þeir hvöttu afkvæmi sín áfram af miklum móð og orðfærið sem sum þeirra viðhöfðu skal ekki haft eftir hér enda hvorki við hæfi hér né á knattspyrnumóti barna á sumardögum í Vestmannaeyjum.  Sjónvarp Símanns sendir senn út leikna þáttaröð um foreldrana sem standa á hliðarlínum knattspyrnuleikja barna sinna.

Vitanlega má huga að leikni þeirra sem stunda þessa íþrótt. Ótalmörgum klukkutímum hefur verið varið í æfingar sem eru vafalaust hið mesta puð. Á æskuárum fannst mér sannarlega puð þegar vinirnir vildu ólmir fara í fótbolta. 

Við höfðum um fáa staði að velja og Leiknisvöllurinn í Fellahverfinu varð oft fyrir valinu þótt okkur þætti hann svolítið of stór. Það var heldur ekki notalegt að detta á og renna eftir mölinni sem þakti yfirborð vallarins. 

Mörkin voru líka mjög stór fannst okkur sem hlupum fram og til baka eftir tuðrunni í Nokiastígvélum. Við upplifðum í huganum heimsmeistaramót, mátuðum okkur við hinar heimsfrægu hetjur og vorum loks afar fegnir að halda heim þreyttir eftir leikinn og horfa á hetjurnar leika raunverulega knattspyrnu.

Mig langar að segja ykkur eina sögu sem mér finnst áhugaverð og fjallar á einhvern hátt um fótbolta en þó ekki HM. Fyrir nokkuð löngu vann ég um skeið hjá sjónvarpsstöðvum á Englandi. Í tvígang var ég sendur ásamt tökumanni í lest frá London norður til Manchester á heimavöll Manchester United, Old Trafford. 

Okkur var þar afhentur sérstakur aðgangspassi að vellinum og eins og um hafði verið samið sýndi öryggisteymi okkur hvar við gátum athafnað okkur. Við mættum nokkuð tímanlega og sáum því áhorfendurna streyma inn og koma sér fyrir í stúkunum allt umhverfis völlinn. 

Þegar allt var klárt blés dómarinn í flautu sína og leikurinn upphófst en hvorugan leikinn sá ég en naut samt stemningarinnar í hörgul. Hvernig má það vera að ég hafi ekki séð leikina þar sem ég stóð á hliðarlínunni? Jú, verkefni okkar var að mynda það sem fram fór í stúkunni og þar af leiðandi snerum við baki í allt það sem fram fór á iðagrænu grasi vallarins. 

Ekki man ég hvaða lið Manchester United var að keppa við enda skiptir það í sjálfu sér ekki máli. Í bæði skiptin var mikið um að vera og við náðum fínum skotum af stuðningsmönnum sem nutu leikjanna. Sir Alex Ferguson var á staðnum og rölti fram og til baka við hliðarlínuna og gaf skipanir. Efnið var seinna notað í stiklur sem við gerðum til að auglýsa leiki Manchester United í Champions League það árið.

Af værum blundi

Af einhverri ástæðu vaknaði áhugi minn á heimsmeistaramótinu þetta árið af værum blundi. Jú, jú ég horfði á leiki og sá mikla umfjöllun um það sem gerðist í Mexíkó, Kanada og í Bandaríkjunum. Þegar mótið hófst var mikið rætt um vatnspásurnar í hvorum hálfleik. 

Sumir lýsendur kölluðu þessi þriggja mínútna löngu hlé drekkutíma sem mér finnst skondið. Alþjóðaknattspyrnusambandið sem annast framkvæmd mótsins sagði með þeim verið að huga að velferð leikmannanna sem hingað til hafa sparkað boltanum á milli sín og hlaupið fram og til baka á vellinum í 45 mínútur án hlés. 

Gott er og gilt og hið besta mál að taka kúnstpásu og vökva sig þegar hitastig á keppnisstað fer yfir þau mörk sem eðlileg geta talist. Það sem er þó líklega raunverulega ástæðan fyrir þessari reglubreytingu FIFA eru kröfur bandarískra sjónvarpsstöðva um að nota hléið til að senda út auglýsingar. 

Ímynda má sér að þær kosti slatta og að ágóðinn af þeim sé dágóður og vegi þannig upp á móti kostnaðinum við sýningarétt á viðamiklum viðburði sem þessum. Hugsanlega geta stöðvarnar jafnvel greitt eigendum sínum smáaura í gróða að lokinni keppni.

Auðvitað þurfa tekjur af viðburði sem þessum að vega upp á móti kostnaði og skilja eftir ágóða sem notaður verður til reksturs og undirbúnings fyrir næsta mót. Það segir sig sjálft. Þó er það þannig með HM líkt og margt annað að horft er til gróða sem hugsanlega verður nokkuð mikill fyrir þau sjónvarpsfyrirtæki sem senda út og auglýsa vörur og vörumerki viðskiptavina sinna. 

Ég ætla ekki að skrifa um einstaka leiki hér en oft hefur verið mikið fjör og jafnvel læti. Sitt sýnist til dæmis hverjum um móttökurnar sem landslið Írans fékk hjá bandarískum yfirvöldum. Upphaflega átti liðið að hafa bækistöðvar í Arizona sem ekkert varð af vegna vandamála varðandi vegabréfaáritun og vegna spennu af völdum árásarstríðs Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. 

Claudia Sheinbaum forseti Mexíkó bauð liðið velkomið og sagði vel verða tekið á móti því, sem varð og raunin. Þetta varð til þess að íranska liðið varð að ferðast frá Mexíkó til Bandaríkjanna til þess að spila alla sína leiki. 

Að leikjum loknum varð það að snúa strax til baka til Tijuana en fékk ekki að gista yfir nótt á nálægu hóteli eins og venjan var með önnur lið. Mig grunar að þetta hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins sem gerði jafnefli í öllum leikjum og komst ekki upp úr sínum riðli þrátt fyrir að það virtist hafa burði til þess. 

Folarin Balogun framherji bandaríska liðsins og ein af aðalstjörnum þess, var sendur af velli með rautt spjald í viðureign við lið Bosníu og Hersegóvínu í riðlakeppninni. Þegar leikmenn fá rautt spjald í leik á heimsmeistaramóti mega þeir ekki spila næsta leik og sé brotið talið mjög alvarlegt getur leikbannið orðið lengra. 

Brot Balogun var alvarlegt en hann fékk þó aðeins eins leiks bann og var sendur í sturtu. Þetta urðu þó ekki endalok málsins. Vegna þrýstings frá Bandaríkjaforseta veitti FIFA Balogun undanþágu frá þessari reglu, bannið var afturkallað og hann lék næsta leik. 

Það dugði þó ekki til þar sem lið Bandaríkjanna tapaði fyrir liði Belgíu í sextán liða úrslitum mótsins. Balogun náði sér að vísu lítt á strik og var vart sjáanlegur í leiknum. Fjölmargir furðuðu sig á hvers vegna maður sem er talinn sá valdamesti í heiminum legðist svo lágt að fá liðsmann tekinn út fyrir sviga og veitt undanþága sem þessi. Nú hafa borist þau tíðindi að norska knattspyrnusambandið ætlar að kvarta formlega til FIFA vegna afskipta Bandaríkjaforseta.

Ég er þess fullviss að æðstu yfirmenn FIFA hefðu ekki virt það viðlits hefði Vozinha, markmaður Grænhöfðaeyja, fengið rautt spjald og ráðamenn þar kvartað með sama hætti og Bandaríkjaforseti gerði. En nóg um það, heimspressan og samfélagsmiðlar urluðust og fjöldamargt var sagt um þetta óvenjulega mál sem er of umfangsmikið til að tíunda hér.

Mig langar samt að dvelja enn um stund við framherjann frækna Balogun þar sem hann tengist öðru forvitnilegum þætti þessa risastóra móts. Folarin Jerry Balogun fæddist 3. júlí 2001 í Brooklyn-hverfi New York-borgar í Bandaríkjunum. Eins og stendur leikur Balogun með liði Mónakó  í fyrstu deildinni í Frakklandi og landsliði Bandaríkjanna. 

En Balogun þessi hafði aldrei búið í Bandaríkjunum en hefur bandarískan ríkisborgararétt vegna þess að hann fæddist þar. Foreldrar hans eiga ættir að rekja til Nígeríu og voru á ferðalagi í Bandaríkjunum þegar móðirin var komin á sjöunda mánuð meðgöngu.  Þegar hjónin hugðust fljúga heim til London á Englandi þar sem þau bjuggu synjaði starfsfólk flugfélagsins henni um brottför vegna þess að heilsufarsástand hennar þótti ekki áhættunnar virði. Því fór svo að Balogun litli fæddist eins og áður sagði í New York og sneri heim til Englands þegar hann var tveggja mánaða gamall en með bandarískt ríkisfang upp á vasann.

Bandaríkjaforseti og hans hefur fellt regluna um fæðingarrétt (e. birthright) úr gildi, sem veitir þeim börnum sem fæðast í Bandaríkjunum þar sjálfkrafa ríkisborgararétt. En nú hefur þessi regla verið notuð til að bólstra bandaríska karlalandsliðið í fótbolta. 

Balogun er sannarlega fæddur í Bandaríkjunum en hafði aldrei búið þar eftir að hann sneri aftur til Englands tveggja mánaða gamall og ólst upp í London. Hann ákvað vitaskuld sjálfur að keppa fyrir Bandaríkin fremur en að reyna fyrir sér í enska liðinu, nú eða því nígeríska sem hann hefði einnig getað valið. Hann taldi möguleika sína einfaldlega mesta í bandaríska hópnum.

Einnig vakti athygli mín hve margir leikmenn landsliða Evrópulanda á mótinu eru afkomendur innflytjenda eða innflytjendur sjálfir. Illugi Jökulsson sendi frá sér póst á Facebook um uppruna leikmanna franska landsliðsins og hér kemur viðlíka umfjöllun um lið Englands sem sigraði einmitt lið Frakka í leiknum um bronsverðlaunin. 

FagnaðEnglendingar unnu bronsið á HM í þetta skipti, sem er besti árangur liðsins á heimsmeistaramóti í langan tíma.

Ezri Ngoyo Konsa er fæddur 23. október 1997 í Newham sem er úthverfi London. Faðir hans er frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og móðir hans frá Angóla.

Addji Keaninkin Marc-Israel Guéhi fæddist á Fílabeinsströndinni í Afríku. Guéhi hefur keppt fyrir hönd Englands síðan 2017, fyrst í unglingalandsliðinu en með landsliðinu frá 2022. 

Bukayo Ayoyinka Temidayo Moses Saka sem skoraði þrennu í bronsleiknum við Frakka fæddist í Ealing í London 5. september 2001. Foreldrar hans eru innflytjendur frá Nígeríu. 

Ein aðalstjarna enska liðsins er svo Jude Victor William Bellingham sem fæddist 29. júní árið 2003 í Stourbridge á miðvestur Englandi. Hann er af írsku bergi brotinn í föðurætt og móðir hans er uppruninn frá Jamaíka. 

Marcus Rashford fæddist 31. október árið 1997 í Manchester. Faðir hans á ættir að rekja til Jamaíka og móðir hans frá St. Kitts í Vestur-Indíum. 

Trevoh Tom Chalobah fæddist í Freetown í Síerra Leone þann 5. júlí 1999. Þegar hann var tveggja ára flutti hann til Englands og ólst upp í Lambeth í London.

Kobbie Boateng Mainoo fæddist 19. apríl í Stockport úthverfi Manchester. Foreldrar hans eru frá Gana. 

Oliver George Arthur Watkins fæddist 30. desember 1995 í Torquay í Devon. Hann á ættir að rekja til Jamaíka.

Chukwunonso Azuka Tristan „Noni“ Madueke á ættir að rekja til Nígeríu. Hann fæddist í Barnet, úthverfi London 10. mars árið 2002. 

Eberechi Oluchi Eze. fæddist í Greenwich í London 29. júní árið 1998. Foreldrar hans eru bæði frá Nígeríu.

Reece Lewis James fæddist 8. desember 1999 í Redbridge í London. Pabbi hans er frá Grenada og Dóminikanska lýðveldinu og mamma hans er ensk. 

Diop Tehuti Djed-Hotep Spence er fæddur 9. ágúst árið 2000. Pabbi hans er frá Jamaíka og mamma hans frá Keníu. 

Jarell Amorin Quansah fæddist 29. janúar árið 2003. Faðir hans á ættir að rekja til Gana og móðir hans á ættir að rekja til Skotlands og Barbados.

James Trafford er fæddur 10. október árið 2002 í Cockermouth í Cumbria og ólst upp í þorpinu Greysothen þar sem fjölskyldan stundaði bústörf. 

Anthony Michael Gordon fæddist þann 24. febrúar árið 2001 í Merseyside í Liverpool. Hann á rætur að rekja til Írlands og Skotlands. 

Daniel Johnson Burn er fæddur 9. maí árið 1992 í Blyth á England.  

Jordan Brian Henderson fæddist 17. júní árið 1990 í Sunderland á Englandi. 

Dean Bradley Henderson er fæddur 12. mars árið 1997 í Whithaven í Cumbriu. 

Harry Edward Kane fæddist 28. júlí 1993 í Leytonstone í London. Faðir hans á rætur sínar að rekja til Írlands. 

Elliot Anderson er fæddur 9. maí árið 1992 og uppalinn í Whitley Bay í Tyne and Wear. 

Declan Rice fæddist 14. janúar árið 1999 í Kingston Upon Thames í London. Hann á ættir að rekja til Írlands þar föðuramma hans og afi bjuggu. 

Jordan Lee Pickford fæddist í Logan á Tyne Side 7. mars 1994.

Þessi yfirferð yfir enska landliðið leiðir það í ljós að meirihluti leikmannanna sem gáfu allt sem þeir gátu til að ná besta árangri liðsins á heimsmeistaramóti síðan árið 1966 eru komnir af innflytjendum. Innflytjendum sem hafa örugglega orðið fyrir kynþáttahatri af hálfu landa sinna og verið tjáð að hunskast heim til sín. 

Þrátt fyrir það er liðið stútfullt af leikmönnum sem leggja svo sannarlega mikið á sig til að keppa fyrir þjóð sína. Svo fór að liðið tapaði fyrir Argentínumönnum í undanúrslitum. Það var stórskemmtilegur leikur en svo fór að slæmi kaflinn, sem við Íslendingar könnumst mæta vel við, fór með Englendingana og Argentínumenn höfðu betur. Að lokum keppti liði við lið Frakka í mögnuðum tíu marka leik sem var mikil skemmtun. Englendingarnir hrepptu þriðja sætið og hlutu bronspening að launum fyrir frammistöðu sína. 

Íslenska landsliðið komst ekki í gegn um forkeppnina og var þar af leiðandi ekki með í þetta skiptið þótt FIFA fjölgaði keppnisliðum til muna. Þann 11. júní hófu 48 landslið keppni og Spánverjar stóðu eftir sem heimsmeistarar þegar mótinu lauk 19. júlí. 

Uppáhaldsliðið mitt var frá Grænhöfðaeyjum og lauk keppni snemma þótt frammistaða þeirra miðað við höfðatölu hefði óneitanlega verið frækin.  

Á Grænhöfðaeyjum búa rétt tæplega 500 þúsund manns. Þeirra á meðal er hinn magnaði markvörður, fyrrnefndur Vozinha sem varð fertugur í júníbyrjun. Hann heitir í raun Josimar Évora Dias og er eftir frammistöðu sína á mótinu svo sannarlega orðinn heimsfrægur.

Knattspyrnuáhugafólk mun lengi minnast heimsmeistaramótsins 2026 og nóg er til af klippum og upptökum af atvikum þar, þegar farið verður að kynda undir spennuna fyrir næsta heimsmeistaramóti. Það verður haldið með miklum pompi og prakt árið 2030 í sex löndum og þremur heimsálfum, þegar rétt hundrað ár verða liðin frá fyrsta heimsmeistaramótinu í fótbolta. 

Stóra spurningin er hvort Infantino verði enn við stjórnvölin hjá FIFA sem ég efast satt best að segja um. 

#nútímanns #skylmingaþrælar


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27052/skylmingathraelar-nutimanns/

📰 Aðrar fréttir

Prince and Princess of Wales in India ahead of meeting with Modi
📅 16.11.2026 👁️ 0
Prince and Princess of Wales in India ahead of meeting with Modi
Most of the engagements the royal couple will attend are related to the Earthshot Prize, which Prince William founded.
Opna sjálfsala fyrir þungunarrofspillur á móti þinghúsinu
📅 16.11.2026 👁️ 1
Opna sjálfsala fyrir þungunarrofspillur á móti þinghúsinu
Pólskir aðgerðarsinnar hafa komið á fót skápum þar sem konur geta sótt sér þungunarrofspillur eins og í sjálfsala.Í Póllandi eru ein ströngustu lög um...
Storka lögunum með sjálfsala fyrir þungunarrofspillur
📅 16.11.2026 👁️ 0
Storka lögunum með sjálfsala fyrir þungunarrofspillur
Pólskir aðgerðarsinnar hafa komið á fót skápum þar sem konur geta sótt sér þungunarrofspillur eins og í sjálfsala.Í Póllandi eru ein ströngustu lög um...
Cancer 'sponge' tests for bad indigestion could be offered to more people
📅 16.11.2026 👁️ 2
Cancer 'sponge' tests for bad indigestion could be offered to more people
The "sponge on a string" tests can be done in GP surgeries, rather than hospitals, unlike endoscopy checks that use a small camera.
Yfir tvö hundruð milljónir í aug­lýsingar - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Yfir tvö hundruð milljónir í aug­lýsingar - Vísir
Þetta kemur fram í svari innviðaráðuneytisins við fyrirspurn Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem spurt er hversu miklum fjár...
Blaðamaður sem skrifaði um mannshvörf fannst látinn
📅 15.11.2026 👁️ 2
Blaðamaður sem skrifaði um mannshvörf fannst látinn
Mexíkóski blaðamaðurinn Eduardo Flores fannst látinn á laugardaginn í orlofsbyggð í Acapulco.Ekki hefur fengist staðfest hvort dauði Flores hafi tengs...
Hundruð þúsunda mót­mæltu í þágu fjölmiðlafrelsis - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Hundruð þúsunda mót­mæltu í þágu fjölmiðlafrelsis - Vísir
Mótmælin hófust fyrst í lok október þegar fyrstu umræðu um frumvarp um afnám afnotagjalda af ríkisfjölmiðlinum var komið í gegnum þingið um miðja nótt...
Cut national insurance for under-25s to create jobs, Milburn report to say
📅 15.11.2026 👁️ 3
Cut national insurance for under-25s to create jobs, Milburn report to say
The report being launched this week will suggest gradually reducing employment costs over five years.
Brand moved from Wandsworth to category C prison HMP Littlehey, his wife confirms
📅 15.11.2026 👁️ 2
Brand moved from Wandsworth to category C prison HMP Littlehey, his wife confirms
The convicted rapist has been moved to HMP Littlehey, which houses sex offenders.
Hátt í milljarður vetrar­brauta í fyrsta skrefinu að þrívíddar­korti af al­heiminum - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Hátt í milljarður vetrar­brauta í fyrsta skrefinu að þrívíddar­korti af al­heiminum - Vísir
Evklíð var skotið á loft fyrir þremur árum en hann er sérstaklega hannaður til þess að rannsaka þróun alheimsins frá Miklahvelli og varpa ljósi á huld...
Tories pledge to halt on-screen school exams and cut coursework
📅 15.11.2026 👁️ 2
Tories pledge to halt on-screen school exams and cut coursework
The party says its proposals for England aim to address excessive screen time and over-reliance on AI.
UK will have 'voice' but no vote on EU food rules in Brexit reset
📅 15.11.2026 👁️ 4
UK will have 'voice' but no vote on EU food rules in Brexit reset
EU minister Hamish Falconer insists Britain would have some influence on policy as part of a new deal.
Prince Harry praises war veterans on surprise visit to Ukraine
📅 15.11.2026 👁️ 3
Prince Harry praises war veterans on surprise visit to Ukraine
He has been showing support for injured veterans in Ukraine and praising the country's resilience.
Starfsfólk fataverksmiðja í Bangladess í verkfalli
📅 15.11.2026 👁️ 4
Starfsfólk fataverksmiðja í Bangladess í verkfalli
Um 150 fataverksmiðjum í Bangladess hefur verið lokað vegna verkfalls starfsfólks sem krefst hærri lágmarkslauna.Starfsfólkið krefst 30 þúsund taka í ...
Ottó Tynes er látinn - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Ottó Tynes er látinn - Vísir
Ottó fæddist 4. mars 1970 og lést í Reykjavík laugardaginn 14. nóvember. Foreldrar hans eru Otto Davíd Tynes flugstjóri, látinn 2. júlí 2018, og Brynd...
Sigmundur Davíð: Kolefnishlutleysi 2040 „algjörlega óraunhæft“
📅 15.11.2026 👁️ 4
Sigmundur Davíð: Kolefnishlutleysi 2040 „algjörlega óraunhæft“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að lögfest markmið um kolefnishlutleysi Íslands árið 2040 sé „algjörlega óraunhæft“ og „mik...
Fimm milljarðar geti bæst við uppsafnaðan halla - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Fimm milljarðar geti bæst við uppsafnaðan halla - Vísir
Minnisblaðið er stílað til fjárlaganefndar Alþingis frá forstjórum heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Forstjórarnir eru Díana Óskarsdóttir, forstjó...
„Þegar hundruð og jafnvel milljónir undirskrifta safnast þá er erfitt fyrir stjórnvöld að líta undan“
📅 15.11.2026 👁️ 3
„Þegar hundruð og jafnvel milljónir undirskrifta safnast þá er erfitt fyrir stjórnvöld að líta undan“
Opnunarhátíð alþjóðlegrar herferðar Amnesty International fór fram í Hörpu undir yfirskriftinni: Þitt nafn bjargar lífi. Herferðin fagnar 25 ára afmæl...
Vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri
📅 15.11.2026 👁️ 5
Vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. Tólf hafa látið lífið í umferðarslysum það sem af er ári. Minningarathafnir voru haldnar víða um ...
Segir viðvörunarljós farin að loga á vinnumarkaði
📅 15.11.2026 👁️ 4
Segir viðvörunarljós farin að loga á vinnumarkaði
Flest bendir til þess að það sé erfiðara að fá vinnu í dag en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt samantekt BHM var atvinnuleysi 5,9 prósent í haust, rúmu e...
Minntust fórnar­lamba um­ferðar­slysa - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Minntust fórnar­lamba um­ferðar­slysa - Vísir
Unglingadeildin Ugla kveikti á friðarkertum í Himnastiganum í Kópavogi og flutti séra Pétur Ragnhildarson hugvekju. Sigurður Ingimarsson flutti lagið ...
Fatlaðir listamenn sýna verk sín í miðbæ Selfoss
📅 15.11.2026 👁️ 4
Fatlaðir listamenn sýna verk sín í miðbæ Selfoss
Ný listasýning í miðbænum á Selfossi hefur fengið mikla athygli en þar sýna fatlaðir listamenn verk sín frá Ási styrktarfélagi. Verkin eru unnin úr ul...
Varð valdur að dauða vinar síns: „Við vorum bara strákar og við lifðum hratt“
📅 15.11.2026 👁️ 4
Varð valdur að dauða vinar síns: „Við vorum bara strákar og við lifðum hratt“
Þann 18. febrúar 2008 var Haraldur Már Haraldsson 18 ára og nýkominn með bílpróf. Þá var langþráður draumur loks orðinn að veruleika en sá draumur bre...
Tékkar mótmæla breytingum á ríkisútvarpi
📅 15.11.2026 👁️ 4
Tékkar mótmæla breytingum á ríkisútvarpi
Um 350 þúsund manns mótmæltu í Prag í dag fyrirætlunum stjórnvalda í Tékklandi um að setja ríkisútvarp landsins á fjárlög í stað afnotagjalda. Því fyl...
Starfsmaður með heilahristing eftir árás í World Class
📅 15.11.2026 👁️ 4
Starfsmaður með heilahristing eftir árás í World Class
Ungur karlmaður var handtekinn fyrir utan World Class í Laugum í gær að sögn Björns Leifssonar, eiganda líkamsræktarstöðvarinnar. Vísir greindi fyrst ...
Thousands of US flights cancelled or delayed two days after grounding of planes nationwide
📅 15.11.2026 👁️ 3
Thousands of US flights cancelled or delayed two days after grounding of planes nationwide
The US transport secretary says that normal air-traffic operations may not be restored until Monday.
Mið­flokkurinn velur til­lögu Anders­son - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Mið­flokkurinn velur til­lögu Anders­son - Vísir
63 dagar eru liðnir frá kosningum og enn hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð. Fyrir fimm dögum fékk Ulf Kristersson, starfandi forsætisrá...
Hátt í 1.500 flóttamönnum bjargað undan ströndum Kanaríeyja
📅 15.11.2026 👁️ 4
Hátt í 1.500 flóttamönnum bjargað undan ströndum Kanaríeyja
Björgunarsveitir og strandgæsla björguðu í gær 1.488 flóttamönnum á fjórtán bátum undan ströndum Kanaríeyja. Spænski miðillinn El País segir að ekki h...
Réðst á starfs­mann World Class - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Réðst á starfs­mann World Class - Vísir
Þetta staðfestir Björn Leifsson, eigandi World Class líkamræktarstöðvanna, í samtali við fréttastofu. Hann segir að ungi maðurinn hafi komið með kærus...
Fjórföldun millifærslusvika á tveimur árum
📅 15.11.2026 👁️ 4
Fjórföldun millifærslusvika á tveimur árum
Skráð svik við millifærslu fjármuna af reikningum fólks fjórfölduðust á tveimur árum milli áranna 2023 og 2025. Svik við notkun greiðslukorta voru 29 ...
Watch: Pope Leo rides in helicopter cockpit during Peru trip
📅 15.11.2026 👁️ 4
Watch: Pope Leo rides in helicopter cockpit during Peru trip
The Pope took to the skies before arriving in Cusco on the penultimate day of his Latin America tour.
Saka Rússa um íkveikjutilraun og ætla að loka landamærunum
📅 15.11.2026 👁️ 4
Saka Rússa um íkveikjutilraun og ætla að loka landamærunum
Yfirvöld í Eistlandi saka Rússa um að hafa gert tilraun til að kveikja í drónaverksmiðju fyrirtækisins Threod Systems sem framleiðir langdræga njósna-...
Vilja selja Gagnaveitu Hornafjarðar
📅 15.11.2026 👁️ 4
Vilja selja Gagnaveitu Hornafjarðar
Gagnaveita Hornafjarðar hefur verið sett á sölu. Sveitarfélagið hefur átt og rekið fjarskiptafyrirtækið um árabil en sveitarstjórinn telur það þjóna í...
Fjöl­menni í opnunarpartí Reykjabaða - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Fjöl­menni í opnunarpartí Reykjabaða - Vísir
Jökull og Davíð í Kaleo tóku nokkur lög og fólk skellti sér í böðin. Rebekka Rut Marínósdóttir tók myndir af viðburðinum sem má skoða að neðan.  Reykj...
Fjöl­menni í opnunarpartíi Reykjabaða - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Fjöl­menni í opnunarpartíi Reykjabaða - Vísir
Jökull og Davíð í Kaleo tóku nokkur lög og fólk skellti sér í böðin. Rebekka Rut Marínósdóttir tók myndir af viðburðinum sem má skoða að neðan.  Reykj...
Zelensky urges US and Musk to lift Starlink restrictions and be on 'right side of history'
📅 15.11.2026 👁️ 3
Zelensky urges US and Musk to lift Starlink restrictions and be on 'right side of history'
The Ukrainian president says restrictions are still in place and making it difficult to stop Russian attacks.
Notuðu and­lit þing­manns í aug­lýsingu án leyfis - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Notuðu and­lit þing­manns í aug­lýsingu án leyfis - Vísir
„Mér brá þegar ég sá þetta. Sem alþingismaður geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er opinber manneskja. En þetta er mynd af mér og pabba,“ segir S...
Góðkunningjar lögreglu réðust á mann í miðborginni
📅 15.11.2026 👁️ 4
Góðkunningjar lögreglu réðust á mann í miðborginni
Tveir menn eru grunaðir um að hafa ráðist á einn í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í morgun.Lögregla hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af árá...
Tveir hand­teknir grunaðir um líkams­á­rás - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Tveir hand­teknir grunaðir um líkams­á­rás - Vísir
Árásin átti sér stað í miðborg Reykjavíkur samkvæmt dagbók lögreglunnar. Þar segir að báðir tveir hafi verið látnir gista í fangaklefa lögreglunnar. Á...
Scotland 15-12 Australia - report
📅 15.11.2026 👁️ 4
Scotland 15-12 Australia - report
Scotland edge a dull Nations Championship encounter against Australia at Murrayfield.
Draumur breyttist í martröð þegar Haraldur olli bílslysi sem varð vini hans að bana
📅 15.11.2026 👁️ 2
Draumur breyttist í martröð þegar Haraldur olli bílslysi sem varð vini hans að bana
Maður sem varð valdur að banaslysi ungur að árum vonast til þess að reynsla hans verði til þess að fólk taki ekki áhættu í umferðinni. Alþjóðlegur min...
Gervigreindarmynd af þingmanni notuð í auglýsingu í óþökk hans
📅 15.11.2026 👁️ 3
Gervigreindarmynd af þingmanni notuð í auglýsingu í óþökk hans
Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, var taggaður af varaþingmanni flokksins við auglýsingu erlends fyrirtækis í morgun.Það eitt og sér...
Trident submarine returns home after record-breaking undersea patrol
📅 15.11.2026 👁️ 4
Trident submarine returns home after record-breaking undersea patrol
Defence Secretary Wes Streeting was at HM Naval Base Clyde to welcome the crew after the longest deployment at sea for a British vessel.
Sigurði Helga brá þegar hann sá mynd af sér og föður sínum á Facebook - Ástæðan er óhugnanleg
📅 15.11.2026 👁️ 3
Sigurði Helga brá þegar hann sá mynd af sér og föður sínum á Facebook - Ástæðan er óhugnanleg
Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins veltir fyrir sér ábyrgð samfélagsmiðla og rétt einstaklinga til eigin ímyndar eftir að hann sá erlen...
Afleysingamaður í heimahjúkrun dæmdur fyrir að nauðga 91 árs konu – vísað úr landi
📅 15.11.2026 👁️ 2
Afleysingamaður í heimahjúkrun dæmdur fyrir að nauðga 91 árs konu – vísað úr landi
25 ára afleysingamaður í heimahjúkrun í Danmörku hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi og til brottvísunar fyrir að nauðga tveimur skjólstæð...
Loka landa­mærum eftir meinta íkveikjutilraun Rússa - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 4
Loka landa­mærum eftir meinta íkveikjutilraun Rússa - Vísir
Kristen Michal, forsætisráðherra Finnlands, greindi frá þessu í dag. Öllum landamærastöðvum við landamæri Eistlands að Rússlandi verður lokað frá og m...
Einstaklingar keyptu um 40% hluta í útboði Bláa lónsins
📅 15.11.2026 👁️ 5
Einstaklingar keyptu um 40% hluta í útboði Bláa lónsins
Um 72,7 milljónir hluta í Bláa lóninu að andvirði um 6,9 milljarða króna voru seldir í A-hluta hlutafjárútboðs Bláa lónsins sem lauk á föstudag. Um 40...
Clothing factories shut in Bangladesh as workers strike over pay
📅 15.11.2026 👁️ 2
Clothing factories shut in Bangladesh as workers strike over pay
Workers are striking over demands for a minimum wage of 30,000 taka (£182) a month.
Saga flugslyssins á Srí Lanka sögð á sviði - Vísir
📅 15.11.2026 👁️ 3
Saga flugslyssins á Srí Lanka sögð á sviði - Vísir
Þann 15. nóvember 1978 fórst DC-8 þota Flugleiða, Leifur Eiríksson, í aðflugi að flugvellinum við Kólombó á Srí Lanka. Um borð voru 262, flestir indón...
Húsið sett á sölu tveimur mánuðum eftir hörmulegt andlát hans
📅 15.11.2026 👁️ 4
Húsið sett á sölu tveimur mánuðum eftir hörmulegt andlát hans
Hús Presley Gerber í Hollywood Hills, sem kostaði 3,6 milljónir dala, er komið á sölu aðeins tveimur mánuðum eftir hörmulegt andlát hans, 27 ára að al...