Landsmenn mega gera ráð fyrir skúrum víðast hvar í dag. Það er helst að það verði bjart og þurrt austan til. Sums staðar blæs dálítið. Hiti verður á bilinu sjö til fimmtán stig í dag en gæti verið í kringum frostmark norðaustan til á morgun.
Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:
Suðvestlæg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hvassari norðvestanlands í fyrstu. Skúrir víða um land, en bjart með köflum og þurrt austantil. Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast fyrir austan. Lægir í kvöld og kólnar, en snýst í norðaustanátt á Vestfjörðum.
Norðaustanátt á morgun, 10-15 á Vestfjörðum og suðaustantil, annars hægari. Rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum, slydda eða snjókoma inn til landsins um landið norðaustan- og austanvert, einkum í fjallahæð. Annars úrkomulítið. Hiti 0 til 12 stig, mildast á Suðvesturlandi, en kaldast norðaustantil.