Skrifaði gaman­þætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu - Vísir

Skrifaði gaman­þætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu - Vísir

Skrifaði gaman­þætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu - Vísir

Þættirnir hefja göngu sína á Sýn+ seinna í þessum mánuði og skarta landsliði Íslands í grínleik, auk þess sem þjóðþekktir Íslendingar leika sjálfa sig í skrautlegum aðstæðum. Það verður því töluvert af óvæntum andlitum á skjánum.

Ólafur er leikstjóri og yfirhandritshöfundur þáttanna, en með honum í handritateyminu eru Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson. Þau þrjú fara jafnframt með aðalhlutverk í þáttunum ásamt Aroni Má Ólafssyni, Sögu Garðarsdóttur og Vigdísi Höllu Birgisdóttur.

Um er að ræða fyrsta sjónvarpsverkefni framleiðslufyrirtækisins Logn Media og framleiðendur þáttanna eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.

Í sex þáttum fylgja áhorfendur þremur lögreglupörum í skrautleg útköll, þar sem sönn atvik úr dagbók lögreglunnar eru stökkpallur inn í skáldskapinn. Á milli útkalla kynnast áhorfendur daglegu lífi á lögreglustöðinni, þar á meðal Dolla varðstjóra, sem leikinn er af Jörundi Ragnarssyni, og Boggu símadömu, sem leikin er af Ilmi Kristjánsdóttur.

Serían var skrifuð á tæplega fjórum mánuðum og tekin upp á ógnarhraða, öll sex þáttaröðin var mynduð á níu dögum, en Ólafur segir raunveruleikann aftur og aftur hafa reynst besta uppspretta grínsins.

Tveir fengu sömu hugmyndina

Dagbók lögreglunnar hefur lengi verið sérstakt menningarfyrirbæri á Íslandi, þar sem einfaldar og stundum furðulega orðaðar færslur geta nánast sjálfkrafa vakið upp myndrænar og fyndnar aðstæður.

Vorið 2025 kom Oddur Júlíusson, gamall vinur Ólafs frá því úr menntaskóla, til hans með hugmynd að gamanþáttum um lögreglu í anda bandarísku þáttanna Reno 911! Þeir tóku nokkra fundi sem fólust meðal annars í því að Oddur bauð sér í mat heim til Ólafs, opnaði skjal og þeir byrjuðu að kasta á milli sín hugmyndum. Fljótlega var kominn vísir að sjónvarpsverkefni.

Það sem þeir vissu ekki var að annars staðar í bænum hafði Fannar Scheving Edwardsson hjá framleiðslufyrirtækinu Logn Media verið að þróa nákvæmlega sömu hugmynd. Þegar Fannar og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir selja verkefnið til Sýnar leita þau fyrst til Ólafs og athuga hvort hann hefði áhuga á að skrifa og leikstýra Dagbók lögreglu.

Ólafur áttaði sig fljótt á því að heimurinn hafði greinilega ákveðið að það væri kominn tími á íslenska löggukómedíuna Dagbók lögreglu og að hann ætti að raungera þættina.

„Þegar Þórunn og Fannar höfðu samband hugsaði ég að ég gæti ekki með hreinni samvisku gert neitt annað en að benda þeim á Odd. Þannig kynnti ég Fannar og Odd, sem höfðu í raun fengið nákvæmlega sömu hugmynd á sama tíma og báðir viljað að ég gerði eitthvað í henni. Þeir voru báðir með mikla ástríðu fyrir verkefninu og ákveðna sýn á það sem var bæði innspírerandi og afar hjálplegt.“

Þegar hugmyndin hafði fundið sinn farveg þurfti að setja saman hópinn sem myndi skrifa þættina. Ólafur og Oddur vildu frá upphafi fá Katrínu Halldóru og Darra með í handritsteymi. Ólafur segir ákvörðunina í raun hafa verið sáraeinfalda: Þeir Oddur spurðu sig einfaldlega með hverjum þá langaði mest að sitja fastir í handritaherbergi.

„Við hugsuðum bara: Með hverjum viljum við tveir vinna? Þetta snýst svolítið um tengingu og við erum öll mjög góðir vinir fyrir, ég, Kata, Darri og Oddur. Við höfum öll bakgrunn í spuna og leiklist og erum góð í að spinna út hugmyndir. Það var þvílíkur heiður að fá að vinna þetta með þeim.“

Dagbók lögreglu er stærsta leikstjórnarverkefni Ólafs til þessa.Vísir/Anton Brink

Dagbókarfærslan er bara fræið

Handritshöfundarnir unnu að mestu út frá fréttum sem fjölmiðlar hafa skrifað upp úr lögregludagbókinni í gegnum tíðina. Eins og tekið er fram í upphafi hvers þáttar eru þeir „mjög lauslega byggðir á sönnum atburðum“.

„Fannar hafði unnið mikla undirbúningsvinnu og sett saman stórt skjal með færslum og fréttum sem honum fannst eiga möguleika,“ segir Ólafur og bætir við að það hafi svo sannarlega ekki verið skortur á atvikum sem hafi verið sérkennilegri og ótrúlegri en nokkur skáldskapur.

„Í sumum tilfellum vorum við meira að segja búin að ímynda okkur atriði sem síðan reyndust líkjast einhverju sem raunverulega hafði gerst.“

Oft eru færslurnar í dagbók lögreglu bara ein stutt lína, eins og til dæmis: „Maður í annarlegu ástandi beit frá sér.“

„Þessi eina lína er svolítið eins og fræ. Maður sér fyrir sér að fræið geti orðið að einhverri plöntu og fer að ímynda sér hvað hafi gerst. Dagbókarfærslan er oft bara ein setning en þú þarft að fylla upp í skets sem er kannski tvær eða þrjár mínútur. Þá tekur skáldskapurinn einfaldlega við,“ segir Ólafur.

„Það er engin sena í þáttunum sem er hundrað prósent endursköpun á raunverulegu atviki.“

Fullkomin tilviljun

Ólafur segir þættina ekki vera hefðbundna sketsaþætti, þótt þeir séu að miklu leyti byggðir upp úr stuttum, sjálfstæðum atriðum. Ástæðan er sú að sömu persónurnar koma aftur og aftur fyrir og mynda þannig ákveðinn samfelldan heim.

Höfundarnir sóttu innblástur í raunveruleg bandarísk bodycam-myndbönd og í bandarísku lögregluþættina Cops og því eru þættirnir teknir upp í nokkurs konar heimildarmyndastíl. Bodycam-myndavélar eru mikið notaðar til að skapa raunveruleika tilfinningu og myndavélateymið fylgir lögreglumönnunum þegar þeir mæta á vettvang.

Aron Mola og Katrín Halldóra eru hluti af leikarahópnum í Dagbók lögreglu.Vísir/Anton Brink

Handritateymið leitaði einnig til lögreglumanna og neyðarvarða til að fá innsýn í starfið.

„Við töluðum öll við einhverja lögreglumenn sem við þekkjum og fórum líka á fundi. Ég fór til dæmis á tvo góða fundi með upplýsingafulltrúa lögreglunnar og það opnaði fyrir manni hvað gerist hjá löggunni,“ segir Ólafur og bætir við að fólk hafi þó verið misopið í samtölunum. Sumir voru tilbúnir að svara nánast öllu en aðrir voru óvissir um hvaða upplýsingum þeir mættu deila.

Hann fékk þó óvænta viðbótarþjálfun því á sama tíma og Ólafur skrifaði gamanþætti um löggur fékk hann stórt hlutverk sem lögreglumaður í scandi-noir seríunni Signals eftir Óskar Jónasson, sem kemur út í janúar á Sjónvarpi Símans.

„Á sama tímabili og við vorum að skrifa Dagbók lögreglu var ég fjölmarga daga inni á þykjustulögreglustöð að leika í Signals sem rannsóknarlögreglumaðurinn Kári klæddur í dökkblátt með mitt eigið skrifborð sem leit mjög raunverulega út, innan um fjölbreytta karaktera að leika út háalvarlega atburðarrás. Það var raun æðislegur kontrast við grín seríuna og skemmtileg tilviljun að þetta skyldi einhvern veginn gerast samtímis.“

Í tökunum á Signals fékk Ólafur ófáar hugmyndir fyrir lögreglumenn Dagbók lögreglu. Það verður vart meira „method“ en það án þess að sækja sjálfur um í lögregluskólanum.

Skrautlegt persónugallerí

Fyrst um sinn var ekkert flókið persónugallerí til. Höfundarnir skrifuðu einfaldlega sketsa þar sem persónurnar báru nöfn á borð við „lögga eitt“ og „lögga tvö“. Seinna fóru ákveðnir karakterar að taka á sig mynd og sketsarnir að raðast í kringum þá. Það hjálpaði að handritshöfundarnir gátu sjálfir leikið og því varð sambandið milli skrifanna og persónusköpunarinnar óvenju beint. Leikararnir fengu síðan töluvert svigrúm til að leggja sitt af mörkum í skrifunum.

Handritavinnan var mikill sprettur. Sex þættir urðu að rúmlega 180 blaðsíðum og skrifin héldu áfram fram undir tökur. Hópurinn vann hratt og hélt áfram að breyta senum eftir því sem verkefnið þróaðist.Vísir/Anton Brink

Löggurnar eru þó ekki hugsaðar sem endalausar skopmyndir. Þvert á móti vildi hópurinn að þær væru oftar en ekki eðlilegasta fólkið í herberginu þegar þær mæta inn í gjörsamlega galið ástand. Hver þeirra fær samt sitt litla sérkenni. Löggu Katrínar dreymir um sérsveitina, lögga Odds er tölvuleikjaspilari, persóna Darra er með hæðarkomplexa og lögga Sögu Garðarsdóttur stendur í framkvæmdum heima hjá sér.

„Okkar nálgun var að gera mjög lítið grín að löggunum sjálfum. Þær eru yfirleitt bara eðlilegar og oft svolítið þurrar, því þær þurfa að átta sig á aðstæðum og greiða úr þeim. Svo hafa þær allar eitthvað smá sér sem gefur þeim lit. Markmiðið var að finna hið mannlega í öllum þessum aðstæðum.“

Morðin fá frí

Þættirnir sex voru teknir upp á aðeins níu dögum. Það er ansi bratt, meira að segja fyrir íslenskan sjónvarpsbransa.

Mikið efni er enn ónýtt. Ólafur telur auðvelt að halda áfram með fleiri seríur því dagbók lögreglunnar gefur stöðugt af sér nýjar og skrýtnar sögur.Vísir/Anton Brink

„Við tókum alla sketsa upp á búkmyndavélar sem sýna sjónarhorn lögganna auk tveggja myndavéla sem fylgja löggunum. Því vorum við oft bara einn og hálfan til tvo tíma að taka upp skets vegna þess að það þurfti ekkert að lýsa eða stilla upp myndavélum. Bara mæta inn í aðstæðurnar með löggunum. Tökurnar unnust hratt, en stemningin var mjög góð.“

Eftir alla þessa vinnu segist Ólafur horfa aðeins öðruvísi á lögreglustarfið. Í norrænum glæpaþáttum fær lögreglan yfirleitt morð, hvarf eða óhugnanlegt leyndarmál frá fortíðinni til að glíma við. Raunin er önnur í hverdagslegu „löggulífi“.

„Það er eitthvað mjög skemmtilegt við þessa hversdagslegu hlið lögreglunnar. Alvarlegir sakamálaþættir fjalla yfirleitt um morð og grafalvarlega glæpi sem eru náttúrulega engan veginn skoplegir. En það gerist svo margt annað sem er fyndið og dagbók lögreglunnar minnir mann alltaf á það.“

Ef Dagbók lögreglu fær annað líf í annarri seríu telur Ólafur að efnisskortur verði síst af öllu vandamálið.

„Það er ógrynni af færslum og ég held að það sé mjög auðvelt að gera meira af þessu. Það er allavega mín upplifun eftir að hafa gert þessa sex þætti.“

#gamanþætti #hann #löggur #meðan #skrifaði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930674d/skrifadi-gaman-thaetti-um-loggur-a-medan-hann-var-sjalfur-ad-leika-loggu

📰 Aðrar fréttir

Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu
📅 05.09.2026 👁️ 0
Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu
Sendimenn Trumps, Witkoff og Kushner, lenda í Moskvu Fréttin5. september 2026InnlendarLeave a Comment Sendimenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, Stev...
King and Queen join Highland games fans at Braemar Gathering
📅 05.09.2026 👁️ 0
King and Queen join Highland games fans at Braemar Gathering
The King and Queen watched events including Highland dancing, caber tossing and pipe bands performing at the annual event in Royal Deeside.
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta
📅 05.09.2026 👁️ 0
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta
Alþingi rannsaki RÚV vegna hlutdrægni og rangfrétta Fréttin5. september 2026InnlendarLeave a Comment Stefán Eiríksson útvarpsstjóri RÚV. Páll Vilhjálm...
US hits three Iranian oil tankers after saying its warships were targeted
📅 05.09.2026 👁️ 0
US hits three Iranian oil tankers after saying its warships were targeted
US Central Command says the attacks came after Iran launched ballistic missiles at two of its Navy warships.
Höfðuklútafjandinn
📅 05.09.2026 👁️ 0
Höfðuklútafjandinn
Höfðuklútafjandinn Fréttin5. september 2026Aðsend grein, Erlent, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Síðustu vik...
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn
📅 05.09.2026 👁️ 0
Upphlaup vegna mótmæla í Kaupmannahöfn
Samtök gegn kynþáttafordómum og mismunun (SgKM) boðuðu til sinna mótmæla við Dag Hammerskjolds Allé, í um 750 metra fjarlægð frá upphafspunkti mótmæla...
Deilur innan hinsegin samfélagsins
📅 05.09.2026 👁️ 0
Deilur innan hinsegin samfélagsins
Deilur innan hinsegin samfélagsins Fréttin5. september 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, Hinsegin málefni, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. H...
Nigel Farage tells BBC he 'wasn't listening' in foreign donor talks
📅 05.09.2026 👁️ 0
Nigel Farage tells BBC he 'wasn't listening' in foreign donor talks
The Reform leader also told the BBC's Laura Kuenssberg that his family are "begging" him to leave his job.
Missti besta vin sinn á Krýsu­víkur­vegi og son í um­ferðar­slysi - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Missti besta vin sinn á Krýsu­víkur­vegi og son í um­ferðar­slysi - Vísir
Þetta segir Jóhann Helgi Hlöðversson í samtali við fréttastofu en hann missti einn sinn besta vin í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi árið 1981 þegar han...
Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir nokkurra milljarða króna afgangi á ríkissjóði
📅 05.09.2026 👁️ 0
Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir nokkurra milljarða króna afgangi á ríkissjóði
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að gert sé ráð fyrir nokkurra milljarða króna afgangi á rekstri ríkisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs, ...
Augna­blikið þegar frétta­stofan sjálf varð að frétt - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Augna­blikið þegar frétta­stofan sjálf varð að frétt - Vísir
Það er kannski engin tilviljun að Stöð 2 og fréttastofan urðu til einmitt árið 1986. Þetta var ár mikilla breytinga, hér heima sem erlendis. Kalda str...
Sigmundur Ernir skrifar: Lærdómurinn af þjóðaratkvæðagreiðslunni
📅 05.09.2026 👁️ 0
Sigmundur Ernir skrifar: Lærdómurinn af þjóðaratkvæðagreiðslunni
Fyrir Evrópusinnaða Íslendinga sem vilja aukna samkeppni á kostnað samráðs, og vexti og verðlag að skapi alþýðu og atvinnulífs, eru úrslit þjóðaratkvæ...
Niðurskurðinum hvergi nærri lokið – Segir borgina glíma við útgjaldavanda en ekki tekjuvanda
📅 05.09.2026 👁️ 1
Niðurskurðinum hvergi nærri lokið – Segir borgina glíma við útgjaldavanda en ekki tekjuvanda
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segist vilja verja störfin á gólfinu en 86 hefur sagt upp á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði, þar af verður...
What different world maps get right - and what they get wrong
📅 05.09.2026 👁️ 0
What different world maps get right - and what they get wrong
As the UN adopts a new world map to reflect Africa's true size, let's take a closer look at what different maps get right and wrong.
Fjarhægrimenn gætu fundið smörþefinn af völdum í fyrsta sinn - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Fjarhægrimenn gætu fundið smörþefinn af völdum í fyrsta sinn - Vísir
Í sambandsríkinu búa um tvær milljónir manns, þar af 1,7 milljónir sem hafa kjörgengi í kosningunum á morgun. AfD er popúlískur þjóðernisflokkur sem e...
Fjarhægrimenn gætu fundið smjör­þefinn af völdum í fyrsta sinn - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Fjarhægrimenn gætu fundið smjör­þefinn af völdum í fyrsta sinn - Vísir
Í sambandsríkinu búa um tvær milljónir manns, þar af 1,7 milljónir sem hafa kjörgengi í kosningunum á morgun. AfD er popúlískur þjóðernisflokkur sem e...
TUI brings back direct flights to Fuerteventura from Copenhagen, Stockholm and Oslo
📅 05.09.2026 👁️ 1
TUI brings back direct flights to Fuerteventura from Copenhagen, Stockholm and Oslo
Fuerteventura will regain direct connections with three major northern European tourism markets this autumn, as TUI Nordic expands its operations to t...
Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann
📅 05.09.2026 👁️ 1
Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann
Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann Fram­kvæmda­stjóri Dekkja­hall­ar­inn­ar og eig­andi lík­ams­rækt­ar verma topp­sæt­in yf­ir þau tekju­hæ...
„Við erum komin á sama stað og Norður-Kórea“
📅 05.09.2026 👁️ 1
„Við erum komin á sama stað og Norður-Kórea“
„Staðan hefur verið þannig að ríkið gínir hér yfir öllu á þessum markaði, er bæði með fastan tekjustofn sem er í útvarpsgjöldunum, sem er skattur á ok...
Þriggja daga hlé á árásum á Kænugarð – Stjórnarerindrekar BNA komnir til Moskvu
📅 05.09.2026 👁️ 1
Þriggja daga hlé á árásum á Kænugarð – Stjórnarerindrekar BNA komnir til Moskvu
Steve Witkoff og Jared Kushner, stjórnarerindrekar Bandaríkjanna, eru komnir til Moskvu til að ræða um tillögur að friði milli Rússlands og Úkraínu. B...
„Ég hafna þeirri full­yrðingu al­farið“ - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
„Ég hafna þeirri full­yrðingu al­farið“ - Vísir
Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, steig fram í gær og fordæmdi vinnubrögð stjórnar SÁÁ. Hún sagði það fullreynt...
Reform UK winded by donations row as insiders call for shift in approach
📅 05.09.2026 👁️ 1
Reform UK winded by donations row as insiders call for shift in approach
Nigel Farage's admirers in the party are calling for a stronger operation as the party aims for power.
„Búningadjamm“ á Þjóð­minja­safninu í dag - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
„Búningadjamm“ á Þjóð­minja­safninu í dag - Vísir
Hátíðin hefst í dag klukkan tvö þegar að handverksfólk frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands kennir gestum handtökin á meðan lifandi tónlist ómar um sali ...
Jaguar Land Rover confirms plans for voluntary job cuts
📅 05.09.2026 👁️ 0
Jaguar Land Rover confirms plans for voluntary job cuts
The firm says it needs to save about £1.7bn over the next two years.
Össur segir að Hannes sjái „stórasta“ strákinn í speglinum
📅 05.09.2026 👁️ 1
Össur segir að Hannes sjái „stórasta“ strákinn í speglinum
Össur Skarphéðinsson segir að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafi látið glepjast af vélabrögðum ólígarka og Pútíns þegar hann kom fram í sjónvarpsstöði...
Á­rásar­maður elti blóðugan brotaþola inn á lög­reglu­stöðina - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Á­rásar­maður elti blóðugan brotaþola inn á lög­reglu­stöðina - Vísir
Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 2 en hann segir fleiri hafa verið við lögreglustöðina á Hverfisgötu þegar málið átti ...
Elti blóðugan brotaþola inn á lög­reglu­stöðina - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Elti blóðugan brotaþola inn á lög­reglu­stöðina - Vísir
Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 2 en hann segir fleiri hafa verið við lögreglustöðina á Hverfisgötu þegar málið átti ...
Mótmæla komu flóttafólks með því að loka fyrir umferð að höfninni í Dover
📅 05.09.2026 👁️ 1
Mótmæla komu flóttafólks með því að loka fyrir umferð að höfninni í Dover
Fjöldi svartklæddra mótmælenda í lambhúshettum lokaði veginum að höfninni í Dover í suðurhluta Englands í morgun með þeim afleiðingum að umferð til og...
Ólga innan SÁÁ og upp­risa AfD - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Ólga innan SÁÁ og upp­risa AfD - Vísir
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, segir ekkert til í því að hún hafi logið um það að hafa ekki vitað af uppsögn fráfarandi framkvæmdastjóra læ...
Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýr­keypt - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 1
Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýr­keypt - Vísir
Hin 36 ára gamla Lindsay Clancy verður áfram í haldi og dvelur jafnframt áfram á geðsjúkrahúsinu þar sem hún hefur verið vistuð undafarið en réttarhöl...
Tjáir sig um réttar­höldin yfir Lindsay Clancy - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 0
Tjáir sig um réttar­höldin yfir Lindsay Clancy - Vísir
Hin 36 ára gamla Lindsay Clancy verður áfram í haldi og dvelur jafnframt áfram á geðsjúkrahúsinu þar sem hún hefur verið vistuð undafarið en réttarhöl...
Fanney Dóra: „Ég tók líf mitt og sneri því á hvolf“
📅 05.09.2026 👁️ 2
Fanney Dóra: „Ég tók líf mitt og sneri því á hvolf“
Áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir hefur gengið í gegnum miklar breytingar undanfarið. Hún segir sjálfa sig hafa fullorðnast mikið á síðasta ár...
SPEGILL!
📅 05.09.2026 👁️ 1
SPEGILL!
SPEGILL! Spá­menn sem heim­sækja jörð­ina vara all­ir sér­stak­lega við auð­söfn­un. Hvers vegna ætli það sé? Eitt öflugasta vopn barnanna heitir SPEG...
Umferðarslys í Norðlingaholti: Sjö fluttir á slysadeild
📅 05.09.2026 👁️ 2
Umferðarslys í Norðlingaholti: Sjö fluttir á slysadeild
Sjö voru flutt á slysadeild í gærkvöld eftir að bíl var ekið á ljósastaur austan við bensínstöð Olís í Norðlingaholti. Vísir greinir frá. Ekki liggur ...
Vikulokin: Fjárlög, fjölmiðlar og kjaramál
📅 05.09.2026 👁️ 1
Vikulokin: Fjárlög, fjölmiðlar og kjaramál
Í Vikulokunum í dag verður rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengi...
Tilraunavindvirkjun nærri Þórshöfn kemst ekki undan umhverfismati
📅 05.09.2026 👁️ 1
Tilraunavindvirkjun nærri Þórshöfn kemst ekki undan umhverfismati
Umhverfisáhrif af tveimur vindtúrbínum á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð verða rannsökuð. Fyrirtækið Wpd Ísland kærði ákvörðun um umhverfismat og fór fr...
Myndin til­einkuð mömmu - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Myndin til­einkuð mömmu - Vísir
Þetta segir Höskuldur Þór Jónsson, leikstjóri og höfundur söngvamyndarinnar Hvar er draumurinn? sem er til sýnis í öllum helstu bíóhúsum landsins um þ...
Stúlka sökuð um linnulausar ofsóknir í garð skólasystra sinna – „Ég er fyrir utan hjá þér og þú ert að fara að deyja“
📅 05.09.2026 👁️ 2
Stúlka sökuð um linnulausar ofsóknir í garð skólasystra sinna – „Ég er fyrir utan hjá þér og þú ert að fara að deyja“
„Hún er að fá ógeðsleg skilaboð með morðhótunum, um að hún verði stungin, að hún verði drepin í skólanum, gerandinn er að mæta heim til stúlkunnar um ...
Sjö fluttir á slysa­deild eftir að bíll hafnaði á ljósa­staur - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Sjö fluttir á slysa­deild eftir að bíll hafnaði á ljósa­staur - Vísir
Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, en hann greindi einnig frá því að um hafi verið að ræða ...
Sjö fluttir á slysa­deild eftir að bíl var ekið á tvo ljósa­staura - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Sjö fluttir á slysa­deild eftir að bíl var ekið á tvo ljósa­staura - Vísir
Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, en hann greindi einnig frá því að um hafi verið að ræða ...
„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“
📅 05.09.2026 👁️ 2
„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“
„Frelsið er besta ávöxtunin sem peningar gefa manni“ Hjón­in Georg Lúð­víks­son og Kristrún Tinna Gunn­ars­dótt­ir þýddu bók­ina Sál­fræði pen­ing­ann...
Átakalínur: Staða fjölmiðla á Íslandi í dag
📅 05.09.2026 👁️ 2
Átakalínur: Staða fjölmiðla á Íslandi í dag
Í vikunni var sendur út síðasti kvöldfréttatími Sýnar sem þýðir að í fyrsta sinn í tæp 40 ár eru kvöldfréttir aðeins í boði í Ríkissjónvarpinu. Er þet...
Full­trúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Full­trúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís - Vísir
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur gefið það út að hann muni hitta tvímenningana í Kænugarði á sunnudag eftir að þeir munu hafa rætt við Vladimír...
Áfram sambandslaust í Mjóafirði: Slit á erfiðum stað
📅 05.09.2026 👁️ 2
Áfram sambandslaust í Mjóafirði: Slit á erfiðum stað
Tveir ljósleiðarastrengir eru slitnir í Mjóafirði sem hefur áhrif á farsíma- og netþjónustu í firðinum.Atli Stefán Yngvason, upplýsingafulltrúi Mílu, ...
Íslenskur rannsakandi hlýtur milljarða styrk
📅 05.09.2026 👁️ 0
Íslenskur rannsakandi hlýtur milljarða styrk
Íslenskur rannsakandi hlýtur milljarða styrk Oddný Helgadóttir fær milljarðastyrk Mynd: Facebook Oddný Helgadóttir, dósent við Viðskiptaháskólann í Ka...
Hátt í átta­tíu eftirskjálftar - Vísir
📅 05.09.2026 👁️ 2
Hátt í átta­tíu eftirskjálftar - Vísir
„Það er einn og einn skjálfti en það er bara eðlileg eftirskjálftavirkni,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir náttúruvársérfræðingur í samtali við Vísi. Þri...
Masked protesters block access at Port of Dover
📅 05.09.2026 👁️ 2
Masked protesters block access at Port of Dover
Masked protesters are preventing traffic from going in and out of the Port of Dover.
Disruption at Port of Dover as masked men hold protest
📅 05.09.2026 👁️ 2
Disruption at Port of Dover as masked men hold protest
Images appear to show hundreds of protesters, all dressed in black and wearing face coverings.
Disruption at Port of Dover due to 'stop the boats' protest
📅 05.09.2026 👁️ 0
Disruption at Port of Dover due to 'stop the boats' protest
The government says it condemns "the behaviour in Dover" and the disruption it has caused.
Hægur vindur og bjart sunnan heiða
📅 05.09.2026 👁️ 2
Hægur vindur og bjart sunnan heiða
Hægar suðvestlægar eða breytilegar áttir verða yfir landinu í dag. Dálítil rigning eða súld verður norðan- og austantil, en stöku skúrir síðdegis.Þett...